
Á þriðja hundrað björgunarveitarmenn, þar á meðal frá Vesturlandi, tóku í gærkvöldi þátt í leit að ferðamanni að Fjallabaki, en leitinni lauk rétt fyrir miðnætti. Fyrstu sveitirnar voru kallaðar út klukkan fimm síðdegis eftir að boð barst frá neyðarsendi norðaustur af Mýrdalsjökli. Síðar voru fleiri kallaðar til. Á hálendinu er mikill snjór og víða krapi…Lesa meira








