Stjórnsýsluhúsið í Hvalfjarðarsveit. Ljósm. arg.

H listinn býður ekki fram í vor

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "„H-listi Hvalfjarðarlistinn mun ekki bjóða fram í komandi sveitarstjórnarkosningum í Hvalfjarðarsveit. Fulltrúar listans hafa tekið ákvörðun um að bjóða ekki fram í komandi sveitarstjórnarkosningum sem fram fara 14. maí næstkomandi. H-listi hefur starfað í meirihluta í sveitarstjórn frá sveitarstjórnarkosningunum 2018 með fulltrúum Á-listans. H-listinn þakkar fulltrúum Á listans og sveitungum fyrir gott samstarf á kjörtímabilinu,“ segir í tilkynningu frá H listanum sem Brynja Þorbjörnsdóttir sveitarstjórnarfulltrúi sendi frá sér.\r\n\r\nFyrr í dag sendi Á listi Áfram Hvalfjarðarsveit frá sér tilkynningu sama eðlis. H listi og Á listi hafa því báðir ákveðið að bjóða ekki fram, en alls skipa þessir listar fimm sæti af sjö í sveitarstjórn. Einungis Íbúalistinn undirbýr framboð af þeim þremur listum sem buðu fram síðast.",
  "innerBlocks": []
}
H listinn býður ekki fram í vor - Skessuhorn