
Lögreglustjórinn á Vesturlandi hefur fellt niður mál Inga Tryggvasonar, fyrrverandi formanns yfirkjörstjórnar Norðvesturkjördæmis. Þetta staðfestir Ingi í samtali við fréttastofu Ríkisútvarpsins sem fyrst birti frétt þar að lútandi. Fullvíst er talið að aðrir í yfirkjörstjórninni fái sambærilegt bréf á næstu dögum. „Það var ekki talið líklegt til sakfellis. Það eru svo sem engin sérstök viðbrögð…Lesa meira








