Á listi meirihlutans í Hvalfjarðarsveit mun ekki bjóða fram

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Björgvin Helgason, oddviti sveitarstjórnar Hvalfjarðarsveitar og fulltrúi Á lista Áfram, hefur sent tilkynningu fyrir hönd listans. Þar kemur fram að Á listinn Áfram mun ekki bjóða fram fyrir kosningarnar 14. maí næstkomandi. Um leið galopnast staðan í sveitarfélaginu fyrir sveitarstjórnarkosningarnar í vor. Sjö sitja í sveitarstjórn; fjórir af Á lista, tveir af Íbúalistanum og einn fulltrúi frá H lista. Fyrir liggur að Íbúalistinn er byrjaður að undirbúa framboð.\r\n\r\nTilkynningin Á listans er svohljóðandi: „Á-listi Áfram mun ekki bjóða fram í komandi sveitarstjórnarkosningum í Hvalfjarðarsveit. Fulltrúar listans hafa tekið ákvörðun um að bjóða ekki fram í komandi sveitarstjórnarkosningum sem fram fara 14. maí næstkomandi. Á -listi Áfram hefur verið í meirihluta í sveitarstjórn frá sveitarstjórnarkosningunum 2018, fengu fjóra menn kjörna, og hefur starfað í samstarfi við fulltrúa H – lista á þessu kjörtímabili.“",
  "innerBlocks": []
}
Á listi meirihlutans í Hvalfjarðarsveit mun ekki bjóða fram - Skessuhorn