
Myndskreyttum söguspjöldum hefur verið komið fyrir í starfsmannaaðstöðunni á Laugalandi. Ljósm. eg.
Garðyrkjustöðin Laugaland 80 ára í dag
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Í dag, mánudaginn 14. mars, eru áttatíu ár síðan hlutafélagið Laugaland ehf. var stofnað í Stafholtstungum í Borgarfirði og uppbygging garðyrkjustöðvar hófst. Þessara tímamóta verður minnst með einum eða öðrum hætti á afmælisárinu. Meðal annars hafa feðgarnir Helgi Bjarnason og Bjarni Helgason fundið til gamlar ljósmyndir úr starfinu og uppbyggingunni á Laugalandi, sem nú eru komnar upp á vegg í starfsmannaaðstöðu garðyrkjustöðvarinnar ásamt sögunni. Í tilefni dagsins er ættingjum, fyrrum starfsfólki, vinum og sveitungum boðið að koma síðdegis í dag (ef veður leyfir) og skoða þessar myndir sem margar eru frá fyrstu árum ræktunarinnar á Laugalandi.\r\n\r\nÞað voru bræðurnir Helgi og Ólafur Bjarnasynir sem keyptu jörðina Stafholtsveggi árið 1941 og hófu strax kraftmikla uppbyggingu garðyrkjustöðvarinnar Laugalands við hverinn Veggjalaug. Hlutafélag um reksturinn var svo stofnað þennan dag árið 1942. Fyrst var gróðurhús byggt ásamt vinnuskúrum og íveruhúsi. Uppbyggingunni var haldið áfram næstu árin og hefur ásamt endurnýjun húsa og þróun tækni staðið óslitið í þau áttatíu ár sem fyrirtækið hefur starfað.\r\n\r\nEn grípum hér niður í texta Helga Bjarnasonar á söguspjöldunum: „Tómatar og gúrkur voru lengi uppistaðan í ræktuninni en einnig reyndar ýmsar aðrar tegundir á upphafsárunum, eins og melónur, blómkál og gulrætur. Vínber voru í þrjátíu ár þekktasta afurð Laugalands, eða þar til sveppirnir tóku við keflinu. Bjarni Helgason var brautryðjandi í ræktun sveppa hér á landi og var Laugaland helsti ræktandi þeirra um árabil. Frá því upp úr 1990 hefur stöðin verið sérhæfð í ræktun á gúrkum allt árið með aðstoð gróðurlýsingar og annarrar ræktunartækni og er Laugaland einn helsti framleiðandi á gúrkum í landinu.“\r\n\r\nBjarni Helgason keypti garðyrkjustöðina og rak í áratugi. Hefur fyrirtækið þannig verið í eigu sömu fjölskyldu alla tíða, en þriðji og fjórði ættliður í beinan karllegg eiga rekstrinum í dag; Þórhallur Bjarnason og eiginkona hans Erla Gunnlaugsdóttir ásamt syni þeirra Hjalta Þórhallssyni.",
"innerBlocks": []
}