Fréttir

true

Fjölgun smita hefur áhrif á skólastarf í Stykkishólmi

Á mánudaginn voru rétt tæplega 60 manns í einangrun í Stykkishólmi. Staðan hefur haft áhrif á starf leik- og grunnskóla en alls eru 18 starfsmenn frá vinnu í leikskólanum nú vegna smita. Stjórnendur leikskóla biðla til foreldra og forráðamanna að fylgjast vel með tilkynningum og jafnframt eru þau beðin um að halda börnum heima til…Lesa meira

true

Sveitarstjórn hafnar því að vegtenging yfir Grunnafjörð verði valkostur

Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar hefur sent svar við opnu bréfi Ólafs Óskarssonar, sem með grein í Skessuhorni 16. febrúar síðastliðinn, fór fram á að bætt yrði við sem valkosti við frumhönnun nýs Vesturlandsvegar um Hvalfjarðarsveit, að farið yrði yfir ós Grunnafjarðar. Sveitarstjórn hafnar þeirri leið og rökstyður með ýmsu móti í grein sinni, meðal annars með vísan…Lesa meira

true

Fjölbreytt verkefni, fjölgun starfsstaða og framtíðaruppbygging Fjöliðjunnar

Í Fjöliðjunni, vinnu- og hæfingarstað á Akranesi, fer fram fjölbreytt og mikilvæg starfsemi. Síðustu þrjú ár hefur meginhluti starfseminnar verið með aðstöðu að Smiðjuvöllum 9 eða frá því að bruni varð í húsnæði starfsstöðvarinnar við Dalbraut árið 2019. Auk húsnæðisins að Smiðjuvöllum 9 hefur Fjöliðjan verið með verkefni á nokkrum öðrum starfsstöðvum í sveitarfélaginu. Bæjaryfirvöld…Lesa meira

true

Sigursælar í Bikarglímu Íslands

Laugardaginn 19. febrúar fór fram Bikarglíma Íslands. Glímufélag Dalamanna átti þar fimm keppendur. Jóhanna Vigdís Pálmadóttir sigraði með fullt hús stiga í flokki 16 ára stúlkna en Kristín Ólína Guðbjartsdóttir nældi í þriðja sætið í flokki 15 ára stúlkna. Guðbjört Lóa Þorgrímsdóttir sigraði tvöfalt, bæði í +65 kg og opnum flokki kvenna. Meðfylgjandi myndir eru…Lesa meira

true

Breytingar á rannsóknum til greiningar á Covid-19

Eins og áður hefur komið fram í fréttum, þá var hámarks PCR-greiningargetu vegna Covid-19 náð fyrir nokkru síðan. Þetta hefur leitt til þess að bið eftir niðurstöðu úr PCR-greiningum er orðin allt að 2-3 sólarhringar sem er óásættanlegt. Þetta kemur fram í tilkynningu frá embætti sóttvarnalæknis. „Til að bregðast við þessu þá hefur verið ákveðið…Lesa meira

true

Slæmt veður í dag á öllu norðvesturhorninu

Mjög slæmt veðurútlit er fyrir daginn við Breiðafjörð og á Vestfjörðum og er appelsínugul viðvörun í gildi til miðnættis í kvöld. Við Breiðafjörð verður norðaustan stormur eða rok með vindhraða á bilinu 18 – 25 m/s og talsverð snjókoma og skafrenningu með takmörkuðu skyggni norðantil á svæðinu. Búast má við mjög snörpum vindhviðum við fjöll.…Lesa meira

true

Næg verkefni fyrir smíðafyrirtæki á Akranesi

Fram kemur í Húsnæðisáætlun Akraneskaupstaðar fyrir árið 2022 að umtalsverð eftirspurn hefur verið eftir öllum tegundum íbúðarhúsnæðis í bæjarfélaginu og hefur Akraneskaupstaður átt í fullu fangi við við að mæta þeirri eftirspurn. Nú er staðan sú að metfjöldi íbúða er í byggingu og framundan er úthlutun eða sala á lóðum á Sementsreit, Dalbrautarreit og Skógarhverfi…Lesa meira

true

Það var ekki aftur snúið eftir fyrstu veiðiferðina

Einar Vignir Einarsson hefur verið til sjós í hartnær fimmtíu ár. Sjómennskuna byrjaði hann á grásleppuveiðum með föður sínum og frá 16 ára aldri hefur hann verið nánast samfellt til sjós. Ferillinn er fjölbreyttur. Hann hefur verið á fiskiskipum, trillum og strandferðaskipum við Íslandsstrendur. Olíu- og flutningaskipum hefur hann stýrt um heimsins höf og svo…Lesa meira

true

Grundfirðingar án læknis í óveðrum

Mánudaginn 7. febrúar, þegar óveður gekk yfir landið, voru Grundfirðingar án læknis og þurftu að treysta á að komast yfir í nærliggjandi sveitarfélög til að sækja heilbrigðisþjónustu. Þennan dag vildi svo illa til að nokkur óhöpp eða vinnuslys urðu í bænum, þar af þurfti að flytja einn fluttur suður með sjúkrabíl. „Það sem við vorum…Lesa meira