Ræðir við fólk úr öllum kimum samfélagsins í hlaðvarpsþáttunum Lifa og njóta
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Í hlaðvarpsþáttunum Lifa og njóta spjallar Skagakonan Hildur María Sævarsdóttir við fólk úr öllum kimum samfélagsins. Fyrsti þátturinn kom út síðastliðið sumar og óhætt er að segja að Hildur María hafi sett markið hátt strax í upphafi en þar ræddi hún við tónlistarkonuna Grétu Salóme. Þær ræddu saman um tónlistina og hvernig það er að vera opinber persóna á Íslandi. „Það kom mér mjög á óvart hvað hún var fljót að samþykkja. Ég sendi henni bara skilaboð og spurði hvort hún vildi koma í spjall til mín og fékk strax já og tveimur dögum seinna vorum við að taka upp,“ segir Hildur María í samtali við Skessuhorn. Hildur María flutti á Akranesi fimm ára gömul og hefur búið þar síðan, hún á tvö börn, Sævar Þór sem er 14 ára og Helenu Maríu 8 ára. Hildur María vinnur hjá Akraneskaupstað í liðveislu og líkar það starf mjög vel. „Allir dagar eru ný ævintýri og það er svo mikil gleði í þessu starfi. Mér finnst það bara alveg æðislegt og skjólstæðingar mínir eru frábærir,“ segir hún ánægð.\r\n\r\n<em>Rætt er við Hildi Maríu í Skessuhorni sem kom út í morgun.</em>",
"innerBlocks": []
}
Ræðir við fólk úr öllum kimum samfélagsins í hlaðvarpsþáttunum Lifa og njóta - Skessuhorn