Núverandi aðstaða Fjöliðjunnar að Smiðjuvöllum 9. Ljósm. vaks

Fjölbreytt verkefni, fjölgun starfsstaða og framtíðaruppbygging Fjöliðjunnar

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Í Fjöliðjunni, vinnu- og hæfingarstað á Akranesi, fer fram fjölbreytt og mikilvæg starfsemi. Síðustu þrjú ár hefur meginhluti starfseminnar verið með aðstöðu að Smiðjuvöllum 9 eða frá því að bruni varð í húsnæði starfsstöðvarinnar við Dalbraut árið 2019. Auk húsnæðisins að Smiðjuvöllum 9 hefur Fjöliðjan verið með verkefni á nokkrum öðrum starfsstöðvum í sveitarfélaginu. Bæjaryfirvöld hafa lagt mikla áherslu á að leitað lausna á húsnæðismálum Fjöliðjunnar og bæta starfsumhverfi hennar með faglegum hætti.\r\n\r\nÍ tilkynningu frá Akraneskaupstað kemur fram að mikilvægt framfaraspor verði tekið nú í mars en þá mun Fjöliðjan fá aukið og betra rými fyrir starfsemi sína en sveitarfélagið hefur tekið rúma 260 fermetra húsnæði á leigu að Smiðjuvöllum 28. „Um er að ræða nýtt húsnæði sem mun bæta starfsaðstæður Fjöliðjunnar og starfsmanna hennar mikið. Fjöliðjan verður áfram með aðstöðu á Smiðjuvöllum 9. Verkefnum og þjónustu Fjöliðjunnar verður dreift á þessar starfsstöðvar og starfsmenn færa sig á milli verkefna og starfsstaða eftir aðstæðum og stöðu hvers og eins hverju sinni. Móttaka einnota umbúða verður áfram á  Smiðjuvöllum 9.“\r\n\r\n<strong>Samhuga að lausn</strong>\r\n\r\nÁ síðustu dögum hafa stjórnendur Fjöliðjunnar, sviðsstjóri, rekstrarstjóri mannvirkja og bæjarstjóri unnið í nánu samstarfi við leigusala til að gera allan aðbúnað og aðgang sem bestan þannig að hann komi til móts við þarfir starfsmanna og henti starfseminni sem best. „Bæjaryfirvöld samþykktu þessu til viðbótar nýlega heimild fyrir því að Fjöliðjan fengi aðra bifreið til umráða til að koma til móts við vaxandi og fjölbreytta starfsemi. Áherslur bæjaryfirvalda eru að búa sem best um starfsemi Fjöliðjunnar þar til uppbygging á framtíðarhúsnæði starfseminnar verður tekin í notkun að Þjóðbraut 8 og Kalmansvöllum 5,“ segir í tilkynningu.\r\n\r\nÞá segir að framtíð starfsemi Fjöliðjunnar sé björt á Akranesi þó starfsemin hafi farið í gegnum tímabundna örðugleika vegna eldsvoða. „Fullur vilji er hjá öllum sem koma að starfseminni að standa vel að málum og áherslan er á að sjá aukinn fjölbreytileika í atvinnutækifæri fyrir fatlað fólk á Akranesi. Allir bæjarfulltrúar í bæjarstjórn Akraneskaupstaðar standa saman að samþykkt um framtíðaruppbyggingu vinnustaðarins. Opnun nýrrar starfsaðstöðu á Smiðjuvöllum 29 í mars er eitt skref af í átt að þessu lokamarkmiði.“\r\n\r\n<strong>Virkt samstarf um uppbyggingu</strong>\r\n\r\n„Vinnu- og hæfingarstaðir eru með fjölbreytt verkefni svo sem vinnuverkefni, hæfingu og dagþjónustu. Áskoranir vinnu- og hæfingarstaða hafa verið að afla vinnutengdra verkefna og eiga samstarf við atvinnurekendur til að veita fötluðu fólki tækifæri til fjölbreyttrar vinnu.  Akurnesingar gera sér grein fyrir mikilvægi starfseminnar og samstaða um að standa vörð um starfsemina hér eftir sem hingað til. Fjöliðjan hefur verið einn opnasti vinnustaður á Akranesi með miklum heimsóknum daglega. Þessi samfélagslega þátttaka allra starfsmanna hefur verið mikilvægur og verðmætur þáttur í allri starfsemi og vinnustaðamenningu Fjöliðjunnar. Þetta vill bæjarstjórn og stjórnendur Fjöliðjunnar hlúa að til framtíðar. Í því felst að þróa verkefni og nýta aukin tækifæri sem munu skapast í Samfélagsmiðstöðinni. Fram undan er spennandi vinna sem ætlað er að styðja við markmið bæjarstjórnar og stjórnenda Fjöliðjunnar um samfélag án aðgreiningar. Stýrihópar fyrir uppbyggingu Samfélagsmiðstöðvar og uppbyggingu sameiginlegs húsnæðis áhaldahúss, Fjöliðju og Búkollu hefur störf á næstunni ásamt því að fyrirhugað er virkt samstarf um uppbygginguna með starfsmönnum allra starfseininga sem þar munu starfa í framtíðinni.“",
  "innerBlocks": []
}
Fjölbreytt verkefni, fjölgun starfsstaða og framtíðaruppbygging Fjöliðjunnar - Skessuhorn