Fjölgun smita hefur áhrif á skólastarf í Stykkishólmi

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Á mánudaginn voru rétt tæplega 60 manns í einangrun í Stykkishólmi. Staðan hefur haft áhrif á starf leik- og grunnskóla en alls eru 18 starfsmenn frá vinnu í leikskólanum nú vegna smita. Stjórnendur leikskóla biðla til foreldra og forráðamanna að fylgjast vel með tilkynningum og jafnframt eru þau beðin um að halda börnum heima til að létta undir. Þetta kemur fram á vefsíðu Stykkishólmsbæjar.\r\n\r\nÞá segir að töluvert sé um smit hjá nemendum og kennurum grunnskólans sem hafi óhjákvæmilega áhrif á starfið. Gera má ráð fyrir að faraldurinn hafi áfram áhrif á starfsemi skólanna næstu daga.",
  "innerBlocks": []
}
Fjölgun smita hefur áhrif á skólastarf í Stykkishólmi - Skessuhorn