Sýni tekið. Ljósm. úr safni/ kgk.

Breytingar á rannsóknum til greiningar á Covid-19

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Eins og áður hefur komið fram í fréttum, þá var hámarks PCR-greiningargetu vegna Covid-19 náð fyrir nokkru síðan. Þetta hefur leitt til þess að bið eftir niðurstöðu úr PCR-greiningum er orðin allt að 2-3 sólarhringar sem er óásættanlegt. Þetta kemur fram í tilkynningu frá embætti sóttvarnalæknis. „Til að bregðast við þessu þá hefur verið ákveðið að nú verður ekki lengur í boði fyrir almenning með einkenni sem benda til smits af völdum Covid-19 að panta í PCR sýnatöku heldur verða hraðgreiningapróf einungis í boði. Fólk getur pantað tíma í hraðgreiningapróf hjá heilsugæslunni í gegnum Heilsuveru. Einnig verður hægt að panta próf hjá einkafyrirtækjum sem bjóða upp á hraðgreiningapróf. Prófið er einstaklingum að kostnaðarlausu.“\r\n\r\nÞá segir að jákvætt hraðgreiningapróf muni því nægja til greiningar á Covid-19 og ekki verður þörf á staðfestingu á greiningunni með PCR-prófi. „Þeir sem greinast jákvæðir á sjálfprófum/heimaprófum geta fengið greininguna staðfesta með hraðgreiningaprófi hjá heilsugæslunni eða einkafyrirtækjum en greining hjá þessum aðilum er forsenda fyrir því að hún verði skráð í sjúkraskrá viðkomandi og forsenda fyrir opinberum vottorðum um smit af völdum Covid-19.\r\n\r\nÞeim sem nú greinast með COVID-19 á hraðgreiningaprófi er ekki skylt að dvelja í einangrun en engu að síður eru tilmæli sóttvarnayfirvalda þau, að fólk dvelji í einangrun í 5 daga. Ef fólk er einkennalítið eða einkennalaust þá getur það mætt til vinnu en fari þá eftir leiðbeiningum um smitgát í 5 daga. Samkvæmt núgildandi reglugerð um einangrun þá er þeim sem greinast með PCR-prófi hins vegar skylt að dvelja í einangrun í a.m.k. 5 daga.\r\n\r\nNotkun á PCR-prófum verður framvegis bundin við ábendingar lækna og þá sem eru með alvarleg einkenni eða alvarlega undirliggjandi sjúkdóma skv. mati læknis. Einnig verður PCR-próf áfram í boði fyrir þá sem þurfa á neikvæðum niðurstöðum slíkra prófa að halda vegna ferðalaga erlendis en þá gegn gjaldi.“",
  "innerBlocks": []
}
Breytingar á rannsóknum til greiningar á Covid-19 - Skessuhorn