Grundfirðingar án læknis í óveðrum

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Mánudaginn 7. febrúar, þegar óveður gekk yfir landið, voru Grundfirðingar án læknis og þurftu að treysta á að komast yfir í nærliggjandi sveitarfélög til að sækja heilbrigðisþjónustu. Þennan dag vildi svo illa til að nokkur óhöpp eða vinnuslys urðu í bænum, þar af þurfti að flytja einn fluttur suður með sjúkrabíl.\r\n\r\n„Það sem við vorum sérstaklega óhress með þennan dag var að allsstaðar voru björgunaraðilar, stofnanir og fyrirtæki að undirbúa sig fyrir rauða og appelsínugula viðvörun en læknir var þó ekki kominn til okkar á mánudegi. Ég er fyrst og fremst vonsvikin því það var vitað af þessu óveðri með góðum fyrirvara,“ segir Björg Ágústsdóttir bæjarstjóri í Grundarfirði í samtali við Skessuhorn.\r\n\r\nÍ Grundarfirði koma vaktlæknar á mánudögum og fara á föstudögum og um helgar þurfa bæjarbúar að treysta á læknavakt í Ólafsvík. „Það er ekki fastur læknir hér og það fylgja þessu fyrirkomulaga margvísleg óþægindi. Fyrirkomulagið þýðir að við erum alltaf að skipta um lækna, sem er ekki gott. Sama fyrirkomulag er á öðrum stöðum á Snæfellsnesi; í Ólafsvík og að hluta til í Stykkishólmi. Að stóla á læknaferðir á milli staða er ekki alveg einfalt, því hér á okkar svæði geta veður orðið mjög slæm, eins og í Búlandshöfða og ekki alltaf fært fyrir alla bíla hér á milli. Það eiga heldur ekki allir bíla og það eru ekki almenningssamgöngur á þessu svæði. Þetta snýst ekki bara um þann tíma sem fer í keyrslu á milli bæjarfélaga, sem er ekki langur við bestu aðstæður, heldur þá staðreynd að stundum er bara ekki hægt að fara á milli,“ segir Björg og bætir því við að vegna óveðurs og lokunar á Kjalarnesi viku seinna, mánudaginn 14. febrúar, var einnig læknislaust í Grundarfirði þann dag. „Því er öryggi okkar að mínu mati alls ekki nógu vel tryggt,“ segir Björg. „Hér á Snæfellsnesi höfum við sveitarstjórnarfólk átt fundi og samtöl við Heilbrigðisstofnun Vesturlands, reglulega allt þetta kjörtímabil um lausnir og tækifæri til breytinga á þessu. Engin lausn sé enn í sjónmáli,“ segir Björg.",
  "innerBlocks": []
}
Grundfirðingar án læknis í óveðrum - Skessuhorn