Sveitarstjórn hafnar því að vegtenging yfir Grunnafjörð verði valkostur
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar hefur sent svar við opnu bréfi Ólafs Óskarssonar, sem með grein í Skessuhorni 16. febrúar síðastliðinn, fór fram á að bætt yrði við sem valkosti við frumhönnun nýs Vesturlandsvegar um Hvalfjarðarsveit, að farið yrði yfir ós Grunnafjarðar. Sveitarstjórn hafnar þeirri leið og rökstyður með ýmsu móti í grein sinni, meðal annars með vísan í að Grunnifjörður njóti friðunar sem Ramsarsvæði og sömuleiðis að munni nýrra Hvalfjarðarganga gæti mögulega verið látinn snúa í norður. Hanna þurfi nýjan Vesturlandsveg með tilliti til þess. „Það er mat sveitarstjórnar að við ákvörðun á legu þjóðvegar 1 í gegnum Hvalfjarðarsveit þurfi að líta til margra þátta og í því felist margvíslegar áskoranir. Það er skoðun sveitarstjórnar að það sé verkefni Vegagerðarinnar að finna og leggja til bestu lausnina í þeim efnum í samráði við sveitarstjórn og íbúa sveitarfélagsins,“ segir í svari sveitarstjórnar við grein Ólafs.\r\n\r\nÞá hafnar sveitarstjórn því sömuleiðis að íbúar nærliggjandi sveitarfélaga hafi sett kröfu um að Vesturlandsvegur yrði lagður yfir ós Grunnafjarðar og vísar til vinnu við gerð samgönguáætlunar Vesturlands sem nú fer fram á vettvangi sveitarstjórnarstigsins. „Því fer fjarri að í þeirri vinnu eða annars staðar sé ákall eða þrýstingur af hálfu nágrannasveitarfélaga eftir vegi um Grunnafjörð.“\r\n\r\n<a href=\"https://skessuhorn.is/adsendar-greinar/svar-vid-lesendabrefinu-bjorgum-sveitinni/\">Grein sveitarstjórnar má lesa hér.</a>",
"innerBlocks": []
}
Sveitarstjórn hafnar því að vegtenging yfir Grunnafjörð verði valkostur - Skessuhorn