
Fjölbýlishús í byggingu við Þjóðbraut 3.
Næg verkefni fyrir smíðafyrirtæki á Akranesi
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Fram kemur í Húsnæðisáætlun Akraneskaupstaðar fyrir árið 2022 að umtalsverð eftirspurn hefur verið eftir öllum tegundum íbúðarhúsnæðis í bæjarfélaginu og hefur Akraneskaupstaður átt í fullu fangi við við að mæta þeirri eftirspurn. Nú er staðan sú að metfjöldi íbúða er í byggingu og framundan er úthlutun eða sala á lóðum á Sementsreit, Dalbrautarreit og Skógarhverfi sem er að mæta betur uppsafnaðri þörf. Eftirspurn er mikil eftir húsnæði á höfuðborgarsvæðinu sem hefur ekki verið mætt og hefur það haft þau áhrif að eftirspurn er búin að færast til nágrannasveitarfélaganna. Akranes er því bæði að þjóna innri vaxtarþörf sem er tilkomin vegna eðlilegrar stækkunar bæjarins sem og ytri vaxtarþörf sem er tilkomin vegna skorts af öðrum svæðum, sem og vegna sóknar í atvinnumálum.\r\n\r\nSkessuhorn heyrði í nokkrum byggingafyrirtækjum á Akranesi til að skoða stöðuna á markaðinum, hver helstu verkefnin hafi verið síðustu mánuði og hvernig verkefnastaðan liti út á þessu ári.\r\n\r\n<em>Hægt er að lesa það sem forsvarsmenn nokkurra byggingafyrirtækja á Akranesi höfðu að segja í Skessuhorni sem kom út í morgun.</em>",
"innerBlocks": []
}