Fréttir

true

Sjötíu ára rekstri Brauðgerðar Ólafsvíkur hætt

Bakarí er nú ekki lengur starfrækt í Ólafsvík. Óhætt er að segja að því fylgi söknuður fyrir bæjarbúa að missa þessa þjónustu, en Brauðgerð Ólafsvíkur hefur verið hluti af fyrirtækjaflóru bæjarins í sjö áratugi. Sannkallað handverksbakarí, hvort sem átt er við brauð, vínarbrauð, kökur eða annað. Handverk þar sem ekki hefur verið bakað í sjálfvirkjum…Lesa meira

true

Heilsu- og menningarstyrkir til öryrkja og eldri borgara

Borgarbyggð styrkir frístunda- og menningariðkun öryrkja og eldri borgara með framlagi í formi árskorta í íþróttamannvirki Borgarbyggðar og í Safnahúsið. Þetta kemur fram á vefsíðu Borgarbyggðar. Markmið framlagsins er að hvetja öryrkja og eldri borgara til að taka þátt í heilsueflandi athöfnum og í menningarlífi í sveitarfélaginu. Hægt er að nýta heilsu- og menningarstyrkinn í…Lesa meira

true

Lið FVA komst áfram í Gettu betur

Í gærkvöldi tryggði lið Fjölbrautaskóla Vesturlands sér keppnisrétt í annarri umferð spurningakeppni framhaldsskólanna, Gettu betur, með fræknum sigri á liði Fjölbrautaskóla Suðurnesja. Lið FVA tók strax afgerandi forystu í viðureigninni. Eftir hraðaspurningar var staðan 16-7, FVA í vil, og að loknum bjölluspurningum voru úrslitin ljós, 24-17 fyrir FVA. Liðið skipa þau Kristrún Bára Guðjónsdóttir, Björn…Lesa meira

true

Allir reyndust neikvæðir í Brákarhlíð

Eins og sagt var frá í Skessuhorni kom upp Covid smit í starfsmannahópi á hjúkrunar- og dvalarheimilinu Brákarhlíð í Borgarnesi um miðja síðustu viku. Fram kemur á facebook síðu Brákarhlíðar í gær að á mánudaginn, 10. janúar, hafi verið tekin PCR sýni hjá öllu heimilisfólki fyrir utan þá sex heimilismenn sem greindust með Covid í…Lesa meira

true

Mæðrastyrksnefnd með úthlutun í næstu viku

Janúarúthlutun Mæðrastyrksnefndar Akraness fer fram miðvikudaginn 19. janúar frá kl. 13-16 í Jónsbúð við Akursbraut 11. „Umsækjendur geta sótt um mánudaginn 17. janúar og þriðjudaginn 18. janúar frá kl. 11-13 í síma 859-3000 og 859-3200 og á netfanginu maedrastyrkurakranes@gmail.com  Einungis nýir umsækjendur þurfa að skila inn gögnum og það er staðgreisluskrá sem fæst á skrifstofu…Lesa meira

true

Skólahald slegið af á hádegi í Snæfellsbæ

Færð tók að spillast á utanverðu Snæfellsnesi fyrir hádegi og var tekin ákvörðun af öryggisástæðum að hætta skólahaldi á hádegi í Grunnskóla Snæfellsbæjar. Nemendur voru ekki fluttir á milli starfsstöðva, eins og vaninn er, heldur ekið heim.Lesa meira

true

Ekki fyrirhugað að loka FB síðu Lögreglunnar á Vesturlandi

Eins og fram kom í frétt hér á síðunni í morgun hefur Lögreglan á Suðurnesjum ákveðið að loka Facebook síðu embættisins. Ástæðan er sögð sú að persónuvernd sé embættinu kappsmál og lögð áhersla á að öll meðferð persónuupplýsinga sé í samræmi við kröfur persónuverndarlaga. Persónuvernd hafði gert athugasemdir við notkun lögreglu hér á landi á…Lesa meira

true

Föstudagurinn DIMMI er framundan

Föstudagurinn DIMMI verður haldinn í Borgarbyggð í sjötta sinn næsta föstudag, 14. janúar, en í síðustu viku undirrituðu Borgarbyggð og verkefnastjórar Föstudagsins DIMMA samstarfssamning þar sem Borgarbyggð styrkir viðburðinn. „Þetta er styrkur sem veittur er stærstu bæjarhátíðum í sveitarfélaginu og erum við nú komin í þann hóp, sem er mikill heiður,“ segir Eva Hlín Alfreðsdóttir,…Lesa meira

true

Mögulega lagt til fyrir helgi að herða sóttvarnaaðgerðir

Á upplýsingafundi Almannavarna sem haldinn var á tólfta tímanum í dag kom fram hjá Þórólfi Guðnasyni sóttvarnalækni að allt stefni í að lagðar verði til hertar sóttvarnaaðgerðir fyrir næstu helgi. Gera þurfi meira en nú er gert til að draga megi úr daglegum fjölda þeirra sem greinast með Covid-19. Ríkisstjórnin samþykkti í gær að framlengja…Lesa meira

true

Bólusetning barna hófst í morgun á Vesturlandi

Bólusetning barna fimm til ellefu ára hófst í morgun í grunnskólunum á Akranesi og í Hvalfjarðarsveit. Í Brekkubæjarskóla voru þau börn sem eru fædd í janúar og febrúar fyrst í röðinni en þau áttu að mæta frá kl. 9-9.30. Síðan gekk þetta koll af kolli og börn fædd í nóvember og desember voru síðust í…Lesa meira