
Brákarhlíð í Borgarnesi. Ljósm. Ómar Örn Ragnarsson.
Allir reyndust neikvæðir í Brákarhlíð
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Eins og sagt var frá í Skessuhorni kom upp Covid smit í starfsmannahópi á hjúkrunar- og dvalarheimilinu Brákarhlíð í Borgarnesi um miðja síðustu viku. Fram kemur á facebook síðu Brákarhlíðar í gær að á mánudaginn, 10. janúar, hafi verið tekin PCR sýni hjá öllu heimilisfólki fyrir utan þá sex heimilismenn sem greindust með Covid í síðustu viku og sömuleiðis hjá öllum starfsmönnum fyrir utan þá fjóra sem greindust einnig. Þau ánægjulegu tíðindi bárust seint á mánudagskvöld og um nóttina að allir þeir sem tekið var sýni úr, alls 120 manns, reyndust neikvæðir.\r\n\r\nÍ yfirlýsingunni segir enn fremur: „Við erum afar þakklát fyrir einstök viðbrögð og samheldni allra sem að verkefninu koma, heimilisfólki, frábærum starfsmannahópi okkar, öðrum viðbragðsaðilum sem veittu okkur ráðgjöf og einnig aðstandendum og þeim skilningi sem við mættum þaðan. Staðan er afskaplega viðkvæm enn, bæði hjá okkur og í samfélaginu öllu. Því munum við fara afar varlega í allar afléttingar á heimsóknartakmörkunum og í almennri starfsemi hér innanhúss næstu daga. Dagdvöl og önnur utanaðkomandi starfsemi fellur niður þar til annað verður ákveðið. Að endingu ítrekum við þakkir fyrir skilning og vinsemd í þessum vandasömu aðstæðum og vonum að það góða samstarf og samskipti sem verið hefur haldist áfram, hvort sem er á Covid tímum eða þegar allt er fallið í ljúfa löð sem vonandi verður sem fyrst.“",
"innerBlocks": []
}