
Hjónin Jón Þór Lúðvíksson og Bjarney Jörgensen eru þessa dagana að vinna við að tæma brauðgerðina. Ljósm. af.
Sjötíu ára rekstri Brauðgerðar Ólafsvíkur hætt
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Bakarí er nú ekki lengur starfrækt í Ólafsvík. Óhætt er að segja að því fylgi söknuður fyrir bæjarbúa að missa þessa þjónustu, en Brauðgerð Ólafsvíkur hefur verið hluti af fyrirtækjaflóru bæjarins í sjö áratugi. Sannkallað handverksbakarí, hvort sem átt er við brauð, vínarbrauð, kökur eða annað. Handverk þar sem ekki hefur verið bakað í sjálfvirkjum vélum heldur með gamla mátanum. Að sögn Jón Þórs Lúðvíkssonar bakara hefur allt rekstrarumhverfi versnað mikið og gert smærri bakaríum erfitt fyrir. Nefnir hann að laun hafi hækkað, tryggingagjöld og alls kyns álögur gert rekstraraðilum erfitt fyrir. Þá hafi aðföng einnig hækkað verulega samhliða því að verslanir eru nú fullar af innfluttum brauðvörum. Jón Þór hefur nú selt bakaríshúsið og vinnur við að tæma það.\r\n\r\n<em>Sjá nánar; Skessuhorn vikunnar.</em>",
"innerBlocks": []
}