Íþróttamannvirki í Borgarnesi. Ljósm. mm.

Heilsu- og menningarstyrkir til öryrkja og eldri borgara

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Borgarbyggð styrkir frístunda- og menningariðkun öryrkja og eldri borgara með framlagi í formi árskorta í íþróttamannvirki Borgarbyggðar og í Safnahúsið. Þetta kemur fram á vefsíðu Borgarbyggðar. Markmið framlagsins er að hvetja öryrkja og eldri borgara til að taka þátt í heilsueflandi athöfnum og í menningarlífi í sveitarfélaginu. Hægt er að nýta heilsu- og menningarstyrkinn í árskort í sund og líkamsrækt í íþróttamiðstöðvum Borgarbyggðar og aðgang að sýningum í Safnahúsi Borgarfjarðar. Árskort í sund og líkamsrækt eru aðgengileg í íþróttamiðstöðvum Borgarbyggðar. Aðgangur að Safnahúsi er ókeypis fyrir öryrkja og eldri borgara gegn framvísun skilríkja.",
  "innerBlocks": []
}
Heilsu- og menningarstyrkir til öryrkja og eldri borgara - Skessuhorn