Föstudagurinn DIMMI er framundan

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Föstudagurinn DIMMI verður haldinn í Borgarbyggð í sjötta sinn næsta föstudag, 14. janúar, en í síðustu viku undirrituðu Borgarbyggð og verkefnastjórar Föstudagsins DIMMA samstarfssamning þar sem Borgarbyggð styrkir viðburðinn. „Þetta er styrkur sem veittur er stærstu bæjarhátíðum í sveitarfélaginu og erum við nú komin í þann hóp, sem er mikill heiður,“ segir Eva Hlín Alfreðsdóttir, annar verkefnastjóri Föstudagsins DIMMA í samtali við Skessuhorn. Þema hátíðarinnar í ár er: Tröll &amp; Fjöll en líkt og á síðasta ári þurfti að aðlaga hátíðina þeirri stöðu sem er í samfélaginu. Íbúar eru hvattir til að skreyta glugga með tröllamyndum eða setja upp tröllaskilti og fylla þannig Borgarbyggð af tröllum yfir helgina. Þá verður hægt að fara í tröllaleit og telja tröllin í sveitarfélaginu og spila um leið tröllabingó sem má finna á Facebook síðu Föstudagsins DIMMA. Þeir sem taka þátt í bingóinu eru hvattir til að setja mynd á samfélagsmiðla undir merkinu #dimmi22 og fá heppnir þátttakendur verðlaun fyrir.\r\n\r\nTröllasögur Hjörleifs sagnamanns verða á sínum stað en að þessu sinni verður sögustundin á rafrænu formi á Facebook síðu Föstudagsins DIMMA en sögurnar verða aðgengilegar til og með 17. janúar. Kuldagallajóga með Erlu jógakennara verður við rætur Hafnarfjalls í hádeginu á föstudaginn og eftir jógað verður tröllatrítl upp að steini á Hafnarfjalli. Hjólreiðafélag Vesturlands ætlar að bjóða upp á samhjól kl. 19:30 frá Skallagrímsgarði og frá Einkunnum kl. 20:00. Vasaljósaganga um Bjargsskóg verður í boði frá fimmtudagi og út mánudag. Hver og einn getur farið á þeim tíma sem hentar en leiðin hefur verið merkt með endurskinsmerkjum frá innsta húsi í Garðavík að veginum að Bjargi. Tröllasnáði verður í skóginum á þessum tíma og þeir sem rekast á hann eru hvattir til að deila mynd af sér með snáðanum á samfélagsmiðlum undir merkinu #dimmi22 og komast þannig í lukkupottinn.\r\n\r\n<em>Nánari upplýsingar um viðburði Föstudagsins DIMMA er að finna á Facebook.</em>\r\n\r\n&nbsp;",
  "innerBlocks": []
}
Föstudagurinn DIMMI er framundan - Skessuhorn