Mögulega lagt til fyrir helgi að herða sóttvarnaaðgerðir

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Á upplýsingafundi Almannavarna sem haldinn var á tólfta tímanum í dag kom fram hjá Þórólfi Guðnasyni sóttvarnalækni að allt stefni í að lagðar verði til hertar sóttvarnaaðgerðir fyrir næstu helgi. Gera þurfi meira en nú er gert til að draga megi úr daglegum fjölda þeirra sem greinast með Covid-19. Ríkisstjórnin samþykkti í gær að framlengja innanlandsaðgerðir óbreyttar til næstu þriggja vikna. Það var gert á grundvelli minnisblaðs Þórólfs sem hann skilaði inn 5. janúar síðastliðinn. Auk þess skiluðu Þórólfur og Alma Möller landlæknir minnisblaði fyrir tveimur dögum þar sem athygli var vakin á þungri stöðu á Landspítalanum vegna fjölgunar smita og innlagna. Því minnisblaði var ætlað að benda stjórnvöldum á þá alvarlegu stöðu sem nú er að verða í faraldrinum. Undanfarna daga hafa um eða yfir þúsund manns verið að greinast á degi hverjum. Segir Þórólfur að sú tala þurfi að fara niður um að minnsta kosti helming til að spítalinn ráði við ástandið. Því boðar Þórólfur nýtt minnisblað innan tíðar. Líklega á morgun ef ríkisstjórnin á að hafa ráðrúm til að bregðast við.",
  "innerBlocks": []
}
Mögulega lagt til fyrir helgi að herða sóttvarnaaðgerðir - Skessuhorn