
Teiknimynd var í gangi í Brekkubæjarskóla til að stytta börnunum stundina. Ljósm. vaks
Bólusetning barna hófst í morgun á Vesturlandi
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Bólusetning barna fimm til ellefu ára hófst í morgun í grunnskólunum á Akranesi og í Hvalfjarðarsveit. Í Brekkubæjarskóla voru þau börn sem eru fædd í janúar og febrúar fyrst í röðinni en þau áttu að mæta frá kl. 9-9.30. Síðan gekk þetta koll af kolli og börn fædd í nóvember og desember voru síðust í röðinni frá klukkan 11.30-12.\r\n\r\nÞegar börnin komu í skólann með foreldri var strikamerki skannað og svo börnin bólusett í rýmum þar sem hjúkrunarfræðingur, námsráðgjafi og félagsfræðingur eru með aðstöðu. Eftir bólusetningu fóru barn og foreldri í sal skólans og var gert að bíða í 15 mínútur undir eftirliti heilbrigðisstarfsfólks ef eitthvað skyldi koma upp á. Til að stytta börnunum stundina var teiknimyndin Aulinn ég sýnd á stórum skjá og síðan fengu börnin að fara heim á leið.\r\n\r\nBent er á að börn sem hafa fengið Covid-19 eiga að bíða með bólusetningu í þrjá mánuði eftir greiningardag. Börn sem eru lasin á bólusetningardegi ættu að bíða með bólusetningu þar til þau hafa jafnað sig af veikindunum. Ef þau reynast vera með Covid-19 er rétt að bíða með bólusetningu í að minnsta kosti þrjá mánuði eftir smitið. Börn sem hafa fengið bráðaofnæmi fyrir öðrum bóluefnum eða stungulyfjum ættu ekki að fá bólusetningu gegn Covid-19 nema í samráði við sérfræðing í ofnæmislækningum.\r\n\r\nSkráning bólusetninga fer eftir lögum um sjúkraskrár. Einungis þeir starfsmenn heilbrigðisþjónustu sem sinna viðkomandi hafa aðgang að þeim upplýsingum. Upplýsingar eru aldrei gefnar til þriðja aðila. Þar af leiðandi fær starfsfólk skóla ekki upplýsingar um hvort barn er bólusett eða ekki.\r\n\r\nÞegar lokið hefur verið við að bólusetja grunnskólabörnin verður næst leikskólabörnum fæddum árið 2016 boðin bólusetning. Leikskólabörnum sem fædd eru 2017 býðst einnig bólusetning þegar þau verða 5 ára. Fyrirkomulag verður auglýst síðar.",
"innerBlocks": []
}