Ekki fyrirhugað að loka FB síðu Lögreglunnar á Vesturlandi
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Eins og fram kom í frétt hér á síðunni í morgun hefur Lögreglan á Suðurnesjum ákveðið að loka Facebook síðu embættisins. Ástæðan er sögð sú að persónuvernd sé embættinu kappsmál og lögð áhersla á að öll meðferð persónuupplýsinga sé í samræmi við kröfur persónuverndarlaga. Persónuvernd hafði gert athugasemdir við notkun lögreglu hér á landi á samfélagsmiðlinum Facebook og þá sérstaklega í tengslum við móttöku upplýsinga í gegnum miðilinn. „Vegna þessa hefur LSS tekið þá ákvörðun að hætta að nota Facebook í samskiptum sínum við almenning og loka síðunni.“\r\n\r\nSamkvæmt upplýsingum frá Ásmundi Kristni Ásmundssyni aðstoðaryfirlögregluþjóni hjá Lögreglunni á Vesturlandi er ekki ráðgert að loka FB síðu embættisins, líkt og Suðurnesjamenn hafa gert. „Við munum ekki gera breytingar hjá okkur að óbreyttu,“ segir Ásmundur í samtali við Skessuhorn. „Við höfum um 16 þúsund fylgjendur að síðu okkar, eða svipað marga og allir skráðir íbúar í umdæminu eru. Af því leiðir að síðan er mjög skilvirk og góð leið fyrir Lögregluna á Vesturlandi að ná til fólks. Einnig er hægt að fá upplýsingar um okkur á logreglan.is. Við höfum m.a. ráðfært okkur við netsérfræðinga hjá embætti Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu og niðurstaðan er sú að ekki er ástæða til að loka FB síðu embættisins. Við fylgjumst hins vegar mjög vel með athugasemdum sem skrifaðar eru á síðuna, meðal annars við færslur, og tökum hiklaust út ummæli sem ekki eiga við. Meðan ráðuneytið gerir ekki athugasemd við þetta fyrirkomulag munum við því áfram halda FB síðu Lögreglunnar á Vesturlandi opinni,“ segir Ásmundur.",
"innerBlocks": []
}
Ekki fyrirhugað að loka FB síðu Lögreglunnar á Vesturlandi - Skessuhorn