Fréttir

true

Heilbrigðiseftirlitið er fyrir fólkið

Þorsteinn Narfason hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri hjá Heilbrigðiseftirliti Vesturlands. Þorsteinn tók fyrst við starfinu í september 2020 eftir að Helgi Helgason hætti störfum en fékk fastráðningu nú um áramótin. Þorsteinn er líffræðingur að mennt auk þess sem hann hefur lokið meistaranámi í umhverfisfræði frá Háskóla Íslands. Hann býr á Álftanesi og á fjögur börn auk…Lesa meira

true

Dópaður á öfugum vegarhelmingi

Skömmu fyrir hádegi síðastliðinn föstudag var hringt í Neyðarlínuna og tilkynnt um bíl sem ekið var á öfugum vegarhelmingi á Vesturlandsvegi við Hafnarfjall.  Samkvæmt vitnum var bíllinn nærri lentur framan á flutningabifreið. Lögregla brást skjótt við og var bíllinn fljótlega stöðvaður. Ökumaður var handtekinn grunaður um akstur undir áhrifum lyfja og fíkniefna auk vörslu fíkniefna.…Lesa meira

true

Él og hvassviðri næsta sólarhringinn

Veðurstofan hefur gefið út gula viðvörun vegna hvassviðris og snjókomu um allt norðvestanvert landið. Við Faxaflóa tekur viðvörun gildi um klukkan 11 í dag og gildir í sólarhring. Við Breiðafjörð tekur viðvörun jafnframt gildi klukkan 11 en verður í gildi fram á miðjan dag á morgun, fimmtudag. Það verður suðvestan 18-25 m/s og él með…Lesa meira

true

Þjóðskrá hefur bætt úr skráningu á forsjá barna

Embætti landlæknis fékk í síðustu viku aðgang að gögnum um forsjá barna vegna yfirstandandi bólusetningar barna. Um er að ræða fyrsta skipti sem forsjárupplýsingum er dreift til annarra opinberra aðila, en Þjóðskrá hefur unnið að þessari skráningu á síðustu árum. „Eftir ábendingar Embættis landlæknis og með frekari yfirferð Þjóðskrár á forsjárskráningu hjá ákveðnum hópi barna,…Lesa meira

true

Lögreglan á Suðurnesjum lokar Facebook síðu sinni í dag

Lögreglan á Suðurnesjum hefur ákveðið að loka Facebook síðu embættisins í dag og hefur skrifað það sem kallað er lokafærsla á síðuna. „Öflug persónuvernd er lögreglunni á Suðurnesjum kappsmál og leggjum við áherslu á að öll meðferð persónuupplýsinga sé í samræmi við kröfur persónuverndarlaga. Lögum samkvæmt ber okkur að tryggja að vinnsla persónuupplýsinga sé með…Lesa meira

true

Vekja athygli á fyrirtækjum á landsbyggðinni

Miðvikudaginn 19. janúar næstkomandi verður #ruralbusiness dagurinn á samfélagsmiðlum. Þennan dag er almenningur hvattur til að vekja athygli á því frábæra fólki, þjónustu og vörum fyrirtækja á landsbyggðinni með því að segja frá sínum uppáhalds fyrirtækjum á samfélagsmiðlum með myllumerkinu #ruralbuisness eða #landsbyggdafyrirtaeki. Markmiðið er að vekja athygli á fyrirtækjum á landsbyggðinni og styðja þannig…Lesa meira

true

Lambhúshettur þema Prjónagleðinnar 2022

Prjónagleðin verður haldin á Blönduósi helgina 10. – 12. júní í sumar og að venju er blásið til hönnunar- og prjónasamkeppni af því tilefni. „Að þessu sinni gengur samkeppnin út að að hanna og prjóna lambhúshettu á fullorðinn. Þema keppninnar er huldufólk samtímans og ber að hafa það í huga við hönnunina, sem á að…Lesa meira

true

Fyrsta loðnan á Akranes

Venus NS-150 kom til hafnar á Akranesi í morgun með um tvö þúsund tonn af loðnu sem veiddist norður af Húnaflóa og Vestfjörðum. Þetta er jafnframt fyrsta loðnan sem berst til hafnar á Akranesi á vertíðinni. Af þessu tilefni færði Sævar Freyr Þráinsson bæjarstjóri áhöfninni á Venusi tertu eins og hefð er fyrir við vertíðarbyrjun.…Lesa meira

true

Gular viðvaranir framundan

Gul veðurviðvörun tekur gildi við Breiðafjörð og Faxaflóa í kvöld og stendur fram á nótt en þá á að lægja. Önnur gul viðvörun tekur svo við snemma í fyrramálið og er í gildi fram að hádegi á fimmtudag. Við Faxaflóa tekur fyrri viðvörunin gildi klukkan 21:00 í kvöld og stendur yfir til klukkan 2:00 í…Lesa meira

true

Jarðskjálfti suðvestan við Húsafell

Síðustu sólarhringa hefur nokkur jarðskjálftavirkni verið suðvestur af Húsafelli. Klukkan 9:14 í morgun mældist jarðskjálfti 3,1 að stærð um 18 km suðvestur af Húsafelli, vestan við Ok, og fannst skjálftinn vel á Húsafelli. Í samtali við Rúv segir Salóme Jórunn Bernharðsdóttir, náttúruvársérfræðingur hjá Veðurstofu Íslands, að ekki sé hætta á eldgosi á þessu svæði. Hún…Lesa meira