
Venus SH við bryggju. Ljósm. mm.
Fyrsta loðnan á Akranes
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Venus NS-150 kom til hafnar á Akranesi í morgun með um tvö þúsund tonn af loðnu sem veiddist norður af Húnaflóa og Vestfjörðum. Þetta er jafnframt fyrsta loðnan sem berst til hafnar á Akranesi á vertíðinni. Af þessu tilefni færði Sævar Freyr Þráinsson bæjarstjóri áhöfninni á Venusi tertu eins og hefð er fyrir við vertíðarbyrjun. Venus NS er eins og kunnugt er í eigu Brims en skipið er skráð á Vopnafirði. Loðnan nú fer öll til bræðslu.\r\n\r\n[caption id=\"attachment_50155\" align=\"alignnone\" width=\"600\"]<img class=\"wp-image-50155 size-medium\" src=\"https://skessuhorn.is/wp-content/uploads/2022/01/Fyrsta-lodnan-a-Akranes_2-600x402.jpg\" alt=\"\" width=\"600\" height=\"402\" /> Sigurbjörn Björnsson vélstjóri tók við rjómatertunni hjá Sævari Frey, fyrir hönd áhafnar Venusar. Ljósm. sfþ.[/caption]",
"innerBlocks": []
}