{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Veðurstofan hefur gefið út gula viðvörun vegna hvassviðris og snjókomu um allt norðvestanvert landið. Við Faxaflóa tekur viðvörun gildi um klukkan 11 í dag og gildir í sólarhring. Við Breiðafjörð tekur viðvörun jafnframt gildi klukkan 11 en verður í gildi fram á miðjan dag á morgun, fimmtudag. Það verður suðvestan 18-25 m/s og él með lélegu skyggni og versnandi akstursskilyrðum, ekki síst á fjallvegum.",
"innerBlocks": []
}