{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Prjónagleðin verður haldin á Blönduósi helgina 10. - 12. júní í sumar og að venju er blásið til hönnunar- og prjónasamkeppni af því tilefni. „Að þessu sinni gengur samkeppnin út að að hanna og prjóna lambhúshettu á fullorðinn. Þema keppninnar er huldufólk samtímans og ber að hafa það í huga við hönnunina, sem á að vera handprjónuð úr íslenskri ull. Óskað er eftir því að sagan á bak við hugmynd og hönnun fylgi með þegar verkinu er skilað inn í keppnina,“ segir í tilkynningu.\r\n\r\nDómnefnd velur þrjú efstu sætin og verða úrslit kynnt á Prjónagleðinni 2022, þar sem verðlaun verða afhent. Styrktaraðilar keppninar eru Ístex, Tundra, VatnsnesYarn og Rúnalist sem gefa glæsileg verðlaun. Lambhúshetturnar sem taka þátt í keppninni verða til sýnis á meðan á hátíðinni stendur. Nánari upplýsingar veitir Svanhildur Pálsdóttir svana@textilmidstod.is og þær má einnig finna á <a href=\"http://www.textilmidstod.is\">www.textilmidstod.is</a>\r\n\r\n<em>-fréttatilkynning</em>",
"innerBlocks": []
}