Lögreglan á Suðurnesjum lokar Facebook síðu sinni í dag
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Lögreglan á Suðurnesjum hefur ákveðið að loka Facebook síðu embættisins í dag og hefur skrifað það sem kallað er lokafærsla á síðuna. „Öflug persónuvernd er lögreglunni á Suðurnesjum kappsmál og leggjum við áherslu á að öll meðferð persónuupplýsinga sé í samræmi við kröfur persónuverndarlaga. Lögum samkvæmt ber okkur að tryggja að vinnsla persónuupplýsinga sé með þeim hætti að viðeigandi öryggi upplýsinganna sé tryggt,“ segir í kveðju tilkynningunni. „Persónuvernd hefur gert athugasemdir við notkun lögreglu hér á landi á samfélagsmiðlinum Facebook og þá sérstaklega í tengslum við móttöku upplýsinga í gegnum miðilinn. Vegna þessa hefur LSS tekið þá ákvörðun að hætta að nota Facebook í samskiptum sínum við almenning og loka síðunni. Síðunni verður lokað eftir sólarhring,“ segir í tilkynningu sem skrifuð var í gær.\r\n\r\nÞá bendir embættið á að upplýsingar og tilkynningar til almennings munu áfram verða birtar á heimasíðu lögreglunnar, logreglan.is og í fjölmiðlum eftir því sem við á. „Bendum við fólki jafnframt á netfang okkar sudurnes@logreglan.is og 112.is þar sem brugðist er við erindum um leið og þau berast. Við þökkum íbúum Suðurnesja sem og landsmönnum öllum fyrir samfylgdina síðastliðin 10 ár sem einkar ánægjuleg og skemmtileg. Yfir og út…“",
"innerBlocks": []
}
Lögreglan á Suðurnesjum lokar Facebook síðu sinni í dag - Skessuhorn