{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Skömmu fyrir hádegi síðastliðinn föstudag var hringt í Neyðarlínuna og tilkynnt um bíl sem ekið var á öfugum vegarhelmingi á Vesturlandsvegi við Hafnarfjall. Samkvæmt vitnum var bíllinn nærri lentur framan á flutningabifreið. Lögregla brást skjótt við og var bíllinn fljótlega stöðvaður. Ökumaður var handtekinn grunaður um akstur undir áhrifum lyfja og fíkniefna auk vörslu fíkniefna. Maðurinn var fluttur á lögreglustöðina í Borgarnesi þar sem mál hans fór í hefðbundið ferli. Mildi þykir að ekki varð slys, en það má meðal annars þakka árvekni vegfaranda sem tilkynnti um aksturslag hins dópaða.\r\n\r\nEn þetta var ekki eina mál svipaðs eðlis sem rataði inn á borð Lögreglunnar á Vesturlandi í vikunni sem leið. Á þriðjudag í liðinni viku var ökumaður handtekinn í Borgarnesi um hádegisbil vegna gruns um að aka undir áhrifum fíkniefna. Sá var fluttur á lögreglustöðina, blóðsýni tekið og mál hans sent hefðbundna leið í dómskerfinu.",
"innerBlocks": []
}