
Lið FVA í Gettu betur: Kristrún Bára, Björn Viktor og Sigrún Freyja. Ljósm. ruv.is
Lið FVA komst áfram í Gettu betur
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Í gærkvöldi tryggði lið Fjölbrautaskóla Vesturlands sér keppnisrétt í annarri umferð spurningakeppni framhaldsskólanna, Gettu betur, með fræknum sigri á liði Fjölbrautaskóla Suðurnesja. Lið FVA tók strax afgerandi forystu í viðureigninni. Eftir hraðaspurningar var staðan 16-7, FVA í vil, og að loknum bjölluspurningum voru úrslitin ljós, 24-17 fyrir FVA. Liðið skipa þau Kristrún Bára Guðjónsdóttir, Björn Viktor Viktorsson og Sigrún Freyja Hrannarsdóttir. Þrír aðrir skólar tryggðu sig einnig áfram í gær, Fjölbrautaskólinn við Ármúla, Tækniskólinn og Fjölbrautaskólinn í Garðabæ.\r\n\r\nÍ kvöld mætir Menntaskóli Borgarfjarðar til leiks og keppir við Menntaskólann á Tröllasaga. Hefst viðureignin klukkan 19 og hægt er að fylgjast með í beinu hljóðstreymi á ruv.is. Fyrstu umferðinni lýkur á morgun, fimmtudag, og komast sigurliðin áfram í aðra umferð sem verður í næstu viku, 17. og 19. janúar. Þann 4. febrúar hefjast svo sjónvarpsútsendingar frá Gettu betur og sjálf úrslitaviðureignin fer fram þann 18. mars.",
"innerBlocks": []
}