Fréttir

true

Reikna með 2,2 milljónum ferðamanna á næsta ári

Á fundi Isavia, rekstraraðila Leifsstöðvar, í síðustu viku kynnti fyrirtækið farþegaspá sína fyrir árið 2023. Í henni er gert ráð fyrir að 7,8 milljónir farþega muni fari um Keflavíkurflugvöll á næsta ári. Það yrði þá þriðji mesti fjöldi farþega um völlinn á einu ári frá upphafi. Þá er því spáð að 2,2 milljónir ferðamanna komi…Lesa meira

true

Rifsnesið kom að landi eftir mettúr

Upp úr hádegi á laugardaginn kom línubáturinn Rifsnes SH að landi með metafla, eða 135 tonn sem fengust á fimm lagnir. Talið er að þetta sé stærsta einstaka löndun í Rifi og þar af leiðandi einnig stærsti róður Rifsness SH frá upphafi. Skipverjar héldu til veiða sunnudagskvöldið 27. nóvember. Vananlega eru lagðar sex lagnir og…Lesa meira

true

Slökkvilið kallað út

Slökkvilið Borgarbyggðar var kallað út með hæsta forgangi laust fyrir klukkan sjö í gærkveldi. Boðin hljóðuðu upp á að eldur væri laus í sumarhúsi í Vatnsendahlíð í Skorradal og að mannslíf væri jafnvel í húfi. Þegar fyrstu menn komu á svæðið reyndist enginn eldur laus og var þá frekari aðstoð afturkölluð. Að sögn Bjarna Kr…Lesa meira

true

Að gera góða hluti – og gefa til baka

Íþróttirnar leiddu þau Snjólf og Björgu saman og setja þau nú stefnuna á Stykkishólm Snjólfur Björnsson og Björg Gunnarsdóttir tóku í haust fyrsta skrefið að því að flytja í Stykkishólm þegar Snjólfur opnaði þar sjúkraþjálfunarstofu. Þar vinnur hann tvo daga í viku en vinnuvikuna klárar hann á sjúkraþjálfunarstofunni Stíganda í Reykjavík. Eftir áramót hyggst hann…Lesa meira

true

Kiwanisklúbburinn styrkir Mæðrastyrksnefnd

Þrír stjórnarmenn úr Kiwanisklúbbnum Þyrli á Akranesi komu færandi hendi síðdegis í gær til Mæðrastyrksnefndar Akraness. Gáfu þeir nefndinni 200 þúsund krónur sem nýtast mun fyrir jólaúthlutun Mæðrastyrksnefndar 15. desember næstkomandi. Mæðrastyrksnefnd Akraness þjónar skólstæðingum sem leita til nefndarinnar úr fjórum sveitarfélögum; Akranesi, Hvalfjarðarsveit, Borgarbyggð og Skorradal. Fyrri hluta desember er jafnan mesti annatímann hjá…Lesa meira

true

Lagt til að byggja hótel og heilsulind á hluta núverandi knattspyrnuvallar

Bæjarráð Akraneskaupstaðar fékk gesti á fund sinn í gær, þau Aðalsteinn Gunnar Jóhannsson frá Ísold fasteignum en frá Íþróttabandalagi Akraness þau Hrönn Ríkharðsdóttir formann stjórnar ÍA og Eggert Herbertsson formann stjórnar KFÍA. Kynntu þau fyrir bæjarráði hugmyndir um uppbyggingu 80 herbergja hótels og heilsulindar á Jaðarsbökkum. Ef til hönnunar svæðisins kæmi, út frá þessum hugmyndum,…Lesa meira

true

Hróshringur Snæfellsness farinn í gang

Hópur fólks og þar á meðal Svæðisgarðurinn Snæfellsness hefur hrundið af stað áhugaverðu verkefni sem nefnist Hróshringur Snæfellsness. Verkefnið er framhald af öðru verkefni hjá svæðisgarðinum sem nefnist Góðar fréttir. Verkefnið er ekki flókið og kostar lítið, en því er ætlað að bera hlýja strauma þvert á sveitarfélagamörk. Íbúar hrósa þannig íbúum í nágrannasveitarfélagi sínu…Lesa meira

true

Bækur og spil eru jólagjöf ársins

Flugmiði raftæki og fatnaður í næstu sætum Eitt af árlegum verkefnum Rannsóknaseturs verslunarinnar (RSV) er val á jólagjöf ársins. Tilgangur verkefnisins er að greina hluta af neysluhegðun landans í aðdraganda jóla og vekja athygli á verslun í landinu. Verkefnið fór þannig fram í ár að upplýsinga var aflað frá neytendum og verslunum um vinsælar sérvörur…Lesa meira