Fréttir

true

Útgerðir kosta víðtæka mælingu á loðnustofninum

Rannsóknaskipin Árni Friðriksson og Bjarni Sæmundsson héldu til loðnumælinga eftir hádegi í gær. Gert er ráð fyrir að verkefnið taki allt að tíu daga. Veiðiskip munu jafnframt taka þátt í verkefninu og aðstoða við að afmarka dreifingu loðnustofnsins sem flýtir fyrir mælingunum rannsóknaskipanna. Þessar rannsóknir Hafrannsóknastofnunar og útgerða eru að frumkvæði og kostaðar af útgerðum…Lesa meira

true

Snæddu ábyrg matvæli í Bjargarsteini

Síðastliðið laugardagskvöld var haldin uppskeruhátíð í verkefni sem nefnist Markaðsetning ábyrgra matvæla af Snæfellsnesi (MÁMS). Þá leiddu saman hesta sína, í fyrsta en örugglega ekki síðasta sinn, matreiðslumennirnir Rúnar Marvinsson á Hellissandi auk Gunnars Garðarssonar og Miroslav Honek frá Bjargarsteini Mathúsi í Grundarfirði. Hráefnið var að mestu fengið frá samstarfsaðilum í MÁMS en 18 matarframleiðendur…Lesa meira

true

Sjötíu ára afmæliskvöldvaka

Skátafélag Akraness er 70 ára í ár. Í tilefni af því bauð félagið upp á almennilega jólakvöldvöku að hætti skáta í sal Brekkubæjarskóla á Akranesi síðastliðinn fimmtudag, 1. desember. Þá var þess líka minnst að 100 ár eru síðan fyrsta kvenskátafélagið var stofnað á Íslandi. Marta Lind Jörgensdóttir og Hanna Bergrós Gunnarsdóttir voru kynnar og…Lesa meira

true

Skagamenn með stórsigur á Þór Akureyri

ÍA tók á móti Þór frá Akureyri í 1. deild karla í körfuknattleik síðasta föstudagskvöld og var leikurinn í íþróttahúsinu við Vesturgötu. Norðanmenn voru enn án sigurs í deildinni en Skagamenn með fjóra sigra úr tíu leikjum þegar flautað var til leiks. ÍA virtist ætla að fara létt með botnliðið í fyrsta leikhluta, voru alltaf…Lesa meira

true

Hópsýking í hrossum rakin til jarðvegsbakteríu

Um miðja síðustu viku upplýsti Matvælastofnun um að upp hafi komið óþekktur sjúkdómur í 30 hrossa hópi á Suðurlandi. Alls veiktust 13 hross af sjúkdómnum og þar af drápust sex. Um er að ræða alvarlegan sjúkdóm sem einkennist af háum hita en auk þess fékk hluti hrossanna mikinn bjúg á framfætur, brjóst og haus. Þetta…Lesa meira

true

Jóladagatal í leikskólanum Sólvöllum

Nú þegar desember er genginn í garð eru börnin á Leikskólanum Sólvöllum í Grundarfirði byrjuð að kíkja í jóladagatalið sem þau gerðu saman. Fram kemur á heimasíðu Grundarfjarðarbæjar að þetta sé samverudagatal sem leikskólabörnin settu inn hugmyndir í og bjuggu til. Á hverjum degi fram að jólafríi opna þau einn poka saman og upp úr…Lesa meira

true

Skallagrímur með sterkan sigur á Sindra

Sindri og Skallagrímur tókust á í 1. deild karla í körfuknattleik á föstudagskvöldið og var viðureignin á Höfn í Hornafirði. Fyrir leik var Sindri í öðru sæti deildarinnar með 16 stig á meðan Skallagrímsmenn höfðu tapað fimm leikjum í röð í deildinni og voru með sex stig í neðri hlutanum. Jafnræði var með liðunum í…Lesa meira

true

Kristín vann til silfurverðlauna á Evrópumótinu

Kristín Þórhallsdóttir kraftlyftingakona úr Borgarfirði gerði það gott á Evrópumótinu í klassískum kraftlyftingum sem fram fór í Skiernewice í Póllandi um helgina. Kristín keppti í -84 kílógramma flokki og var fyrir fram búist við einvígi milli hennar og Agötu Sitko frá Póllandi. Svo fór þó að sú pólska vann til gullverðlauna og lyfti samanlagt 582,5…Lesa meira