
Marko Jurica undir körfunni í leiknum á móti Þór. Ljósm. Jónas H. Ottósson
Skagamenn með stórsigur á Þór Akureyri
ÍA tók á móti Þór frá Akureyri í 1. deild karla í körfuknattleik síðasta föstudagskvöld og var leikurinn í íþróttahúsinu við Vesturgötu. Norðanmenn voru enn án sigurs í deildinni en Skagamenn með fjóra sigra úr tíu leikjum þegar flautað var til leiks. ÍA virtist ætla að fara létt með botnliðið í fyrsta leikhluta, voru alltaf skrefinu á undan og leiddu með átta stigum eftir rúmar sjö mínútur, 19:11. En þá komu Þórsarar til baka og staðan 22:21 ÍA í vil þegar bjallan lét vita af sér. Jafnræði var áfram með liðunum í öðrum leikhluta og staðan 35:32 fyrir ÍA þegar klukkan sýndi fimm mínútur. Skagamenn voru síðan sterkari seinni hlutann og fóru inn í hálfleik með sjö stiga forystu, staðan 46:39 ÍA í hag.