
Borgnesingurinn Guðlaugur Þór Þórðarson umhverfis- og loftslagsráðherra tilkynnti á fundi í Valhöll í hádeginu í dag að hann hyggist bjóða sig fram til formanns Sjálfstæðisflokksins á landsfundi flokksins um næstu helgi. Þar með leggur hann allt undir, ef svo má segja, um pólitíska framtíð sína. Fram til þessa hafði einungis Bjarni Benediktsson sitjandi formaður lýst…Lesa meira








