Fréttir

true

Líflegt haust í landshlutanum

Ekki skortir menningu, fjör og mannlíf í byggðakjörnum Vesturlands þennan mánuðinn. Ýmsar hausthátíðir standa yfir þessa dagana og nóg er um að vera. Um helgina er menningarhátíðin Norðurljósin í Stykkishólmi og Haustfagnaður sauðfjárbænda í Dölum. Í vikunni þar eftir hefjast svo Vökudagar á Akranesi sem er tíu daga menningar- og listahátíð. Þá lauk menningarhátíðinni Rökkurdögum…Lesa meira

true

Framkvæmdir á hundasvæðinu á Akranesi

Fram kemur á heimasíðu Akraneskaupstaðar að nú séu framkvæmdir í gangi á hundasvæðinu við Miðvog sem munu standa í nokkra daga. Hundaeigendur sem hyggjast nýta svæðið á meðan vinna er í gangi eru beðnir um að sýna aðgát og tillitssemi. Beðist er velvirðingar á óþægindum sem þetta kann að valda segir í tilkynningu kaupstaðarins.  Lesa meira

true

Húsið Kirkjuhvoll leigt fyrir íþróttafólk tímabundið

Á fundi bæjarráðs Akraness í morgun var tekið fyrir erindi frá Knattspyrnufélagi ÍA um að fá að nýta húsið Kirkjuhvol fyrir íþróttafólk á vegum KFÍA og mögulega annarra íþróttafélaga þar til bærinn hefur ráðstafað húsinu. Bæjarráð samþykkti að húsnæðið verði nýtt tímabundið af ÍA gegn hóflegri leigu en mikilvægt að það verði útfært þannig að…Lesa meira

true

Opið hús í MB í dag: Afrakstur Lífsnámsviku sýndur

Lífsnámsviku lýkur í dag í Menntaskóla Borgarfjarðar. Þar hafa nemendur starfað í hópum og unnið að heilsutengdum verkefnum, en opið hús er í skólanum kl.16-17:30 í dag fimmtudag, þar sem afrakstur vikunnar er sýndur. Skólinn hefur stundað ákveðið frumkvöðlastarf á sviði menntunar og námið þar verið í stöðugri þróun frá upphafi skólans. Lífsnámsáfangarnir eru afrakstur vinnu…Lesa meira

true

Sportbátar færa Björgunarsveitinni Oki nýjan slöngubát að gjöf

Fyrirtækið Sportbátar er meðal annars umboðsaðili fyrir Zodiac og Bombard slöngubáta. Forsvarsmenn þeirra ákváðu að færa Björgunarsveitinnni Oki í Borgarfirði Zodiac slöngubát að gjöf. Mun hann nýtast vel í leit, björgun og á æfingum sveitarinnar. Slöngubáturinn er 4.7 metrar á lengd, hefur 2-3 í áhöfn og hentar fyrir 40 hestafla mótor. Hann getur borið meira…Lesa meira

true

Lífið var einfalt og skemmtilegt en stundum hættulegt

Í september kom út bókin Gaddavír og gotterí eftir Lilju Magnúsdóttur. Lilja er Borgfirðingur og ólst upp á Stað í Borgarhreppi og á Hraunsnefi í Norðurárdal. Hún stundaði nám á Varmalandi og fór síðan í Reykholt en eftir það lá leiðin til Reykjavíkur þar sem hún fór í íslensku í Háskóla Íslands, tók kennararpróf og…Lesa meira

true

Snæfell enn á sigurbraut

Snæfell tók á móti Hamar/Þór í 1. deild kvenna í körfuknattleik í gærkvöldi og fór leikurinn fram í Stykkishólmi. Leikurinn fór rólega af stað en í stöðunni 5:6 náðu gestirnir góðum spretti og skoruðu tíu stig gegn aðeins tveimur stigum Snæfells, staðan 7:16 fyrir Hamar/Þór eftir rúman fimm mínútna leik. Snæfellskonur voru þó fljótar til…Lesa meira

true

Hljóðfæri Páls í Húsafelli notuð í spænskar verðlaunaþáttaraðir – myndband

Að Kolsstöðum í Hvítársíðu, þar sem áður stóð eyðibýli, stendur nú virt listamannasetur sem hefur þó hvergi verið auglýst í sinni starfstíð. Helgi Eiríksson, lýsingarhönnuður keypti bæinn Kolsstaði um síðustu aldamót og hefur síðan þá byggt upp vel sótta starfsstöð fyrir listafólk til að einbeita sér að verkum sínum í rólyndi og fallegri náttúru. Helgi…Lesa meira

true

Frá Slóvakíu til Grundarfjarðar

Listamennirnir Lobos Kotlar og Martina Masiarová dvelja um þessar mundir í vinnustofu ArtAk 350 í Grundarfirði. Lobos er ljósmyndari og Martina listmálari. Þau útskrifuðust bæði frá Academy of fine art and design listaháskólanum í Slóvakíu árið 2018 en þau kynntust á meðan þau voru í náminu. Þau eru góðir vinir og vinna vel saman en…Lesa meira

true

Mistök í vinnslu krossgátu vikunnar

Mistök urðu við vinnslu krossgátunnar sem birtist í 42. tölublaði Skessuhorns sem kom út í gær. Það vantaði síðustu röðina í krossgátuna í blaðinu en sjá má krossgátuna hér, eins og hún á að vera.    Lesa meira