Helgi á Kolsstöðum og Páll frá Húsafelli. Ljósm. sþ

Hljóðfæri Páls í Húsafelli notuð í spænskar verðlaunaþáttaraðir – myndband

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Að Kolsstöðum í Hvítársíðu, þar sem áður stóð eyðibýli, stendur nú virt listamannasetur sem hefur þó hvergi verið auglýst í sinni starfstíð. Helgi Eiríksson, lýsingarhönnuður keypti bæinn Kolsstaði um síðustu aldamót og hefur síðan þá byggt upp vel sótta starfsstöð fyrir listafólk til að einbeita sér að verkum sínum í rólyndi og fallegri náttúru. Helgi segist í upphafi hafa tekið þá ákvörðun að markaðssetja ekki Kolsstaði en tilvist aðstöðunnar hefur spurst út og hafa nú mörg þekkt nöfn, íslensk og erlend, komið að Kolsstöðum og skapað list í hvers kyns formi. Franska kvikmyndatónskáldið Olivier Arson kom til Kolsstaða fyrir um fjórum árum og vantaði þá aðstöðu til að vinna að tónlist sinni í næði. Vera Oliviers á Kolsstöðum varð til þess að hann fékk að taka upp steinhörpur Páls í Húsafelli sem enduðu svo í þáttaröð sem sýnd var á spænskri kvikmyndahátíð í síðasta mánuði. Páll fór ásamt Helga á kvikmyndahátíðina sem reyndist mun stærri í sniðum en þeir höfðu séð fyrir. Skessuhorn fór í heimsókn að Kolsstöðum og fékk sögu Páls og Helga á ævintýri þessu.\r\n\r\n[caption id=\"attachment_57143\" align=\"alignnone\" width=\"600\"]<img class=\"wp-image-57143 size-medium\" src=\"https://skessuhorn.is/wp-content/uploads/2022/10/Pall-fra-Husafelli-for-a-rauda-dregilinn-a-Spani_2-600x804.jpg\" alt=\"\" width=\"600\" height=\"804\" /> Páll, tónskáldið Olivier og Helgi tilbúnir á rauða dregilinn á kvikmyndahátíðinni sem haldin var í San Sebastian á Spáni.[/caption]\r\n\r\n<strong>Spilaði á fimm steinhörpur</strong>\r\nPáll Guðmundsson frá Húsafelli hefur í gegnum tíðina smíðað hljóðfæri sem unnin eru úr náttúrulegum hlutum. Hann hefur búið til nokkrar steinhörpur, trommur úr bergi og flautur úr rabarbara svo dæmi séu nefnd. ,,Olivier kom til Íslands og vantaði nokkrar vikur til að vinna í næði. Hann byrjar að semja tónlist úti í skemmu og spyr svo hvernig hann eigi að greiða mér fyrir dvölina. Ég segist ekki hafa áhuga á því, eina sem ég bað hann um var að aðstoða mig við að taka upp tónlistina hans Páls og búa til svona ákveðinn hljóðheim úr hljóðfærunum hans. Þannig byrjaði þetta, hann fór svo og tók upp með Páli. Hann sá að hörpurnar höfðu allar sinn karakter svo hann lét Pál spila sama stefið á allar hörpurnar. Síðan kemur Covid og við heyrum ekkert mikið í honum. Hann reynir að finna tækifæri til að nota þessar upptökur í kvikmyndaverkin sín, svo kom bara símtalið fyrir kannski fjórum mánuðum síðan. Þá spyr hann hvort hann megi nota þetta í verkefni sem hann var í. Þetta er þáttasería sem heitir Apagón og fjallar um það að heimurinn fær á sig sólstorm sem gerir það að verkum að allt rafmagn eyðist og öll tækni stöðvast. Þetta eru fimm þættir sem eru í heildina fjórir og hálfur klukkutími en hver þáttur segir sjálfstæða sögu. Einn þátturinn fjallar um fjárhirði sem er að reyna að bjarga fé sínu upp í skóga þar sem lítið var orðið um mat og dýr komin í hættu vegna matarskorts hjá mannkyninu,“ segir Helgi. Margir hafa sóst eftir því að nota hljóð úr steinhörpum Páls í verk sín en eru Olivier Arson og Hilmar Örn Hilmarsson þeir einu sem fengið hafa leyfi Páls fyrir notkun hljóðfæranna.\r\n\r\n[caption id=\"attachment_57144\" align=\"alignnone\" width=\"600\"]<img class=\"wp-image-57144 size-medium\" src=\"https://skessuhorn.is/wp-content/uploads/2022/10/Pall-fra-Husafelli-for-a-rauda-dregilinn-a-Spani_4-600x450.jpg\" alt=\"\" width=\"600\" height=\"450\" /> Páll málaði mynd af menningarhúsinu í San Sebastian á Spáni þar sem alþjóðlega kvikmyndahátíðin var haldin.[/caption]\r\n\r\n<strong>Komu grænir úr sveitinni</strong>\r\nFélagarnir voru úti á Spáni í fjóra daga en kom umgjörð hátíðarinnar þeim stöðugt á óvart. ,,Okkur er boðið á kvikmyndahátíðina þar sem þættirnir voru frumsýndir en þetta er alþjóðleg kvikmyndahátíð sem haldin var í borginni San Sebastian á Spáni. Við gerðum okkur ekki alveg grein fyrir stærðinni á þessu öllu saman, komum frekar grænir þarna úr sveitinni og sáum svo að þetta var bara ,,alvöru“. Við fórum þarna á rauða dregilinn en það var hending að við vorum með nógu fínan klæðnað. Olivier er mjög hógvær maður og gerði ekki mikið úr þessu þegar hann bauð okkur út. Páll hafði sem betur fer tekið með sér gult leðurvesti sem hönnuðurinn Sunneva Vigfúsdóttir gaf honum fyrir 20 árum síðan. Hátíðin var haldin í menningarhúsinu í San Sebastian en það lítur eiginlega alveg eins út og Harpa nema aðeins stærra, Páll er núna búinn að mála mynd af húsinu. Við fórum svo að skoða nöfnin á leikurunum og leikstjórunum og sáum að þarna var bara allt helsta liðið í bransanum á Spáni, þannig þetta var allt mjög stórt og mikil upplifun,“ segja þeir Helgi og Páll.\r\n\r\n[caption id=\"attachment_57145\" align=\"alignnone\" width=\"600\"]<img class=\"wp-image-57145 size-medium\" src=\"https://skessuhorn.is/wp-content/uploads/2022/10/Pall-fra-Husafelli-for-a-rauda-dregilinn-a-Spani_3-600x450.jpg\" alt=\"\" width=\"600\" height=\"450\" /> Páll með hljóðfæri sín sem notuð voru í kvikmyndatónlistina.[/caption]\r\n\r\n<em>Hér að neðan má sjá myndband úr heimsókn blaðamanns að Kolsstöðum þar sem Páll var að mála mynd af menningarhúsinu í San Sebastian, þar sem kvikmyndahátíðin fór fram. Einnig er Helgi að byggja trúarlegt hús sem blaðamaður fékk að sjá, byggingin á að geta þjónað hvaða trú sem auk þess sem mikið hefur verið lagt í hljómburð fyrir tónlistarfólk. Blaðamaður fylgdi svo Páli að Húsafelli þar sem hann lék á nokkur hljóðfæri sem notuð voru í verðlaunaþáttunum.</em>\r\n\r\nhttps://www.youtube.com/watch?v=Hgy94-RYkzE\r\n\r\n&nbsp;\r\n\r\n&nbsp;\r\n\r\n<em>Kynningarmyndband þáttaseríanna má svo sjá hér að neðan:</em>\r\n\r\nhttps://www.youtube.com/watch?v=siFakBVaD2E\r\n\r\n&nbsp;",
  "innerBlocks": []
}
Hljóðfæri Páls í Húsafelli notuð í spænskar verðlaunaþáttaraðir - myndband - Skessuhorn