F.v. Lobos Kotlar og Martina Masiarová

Frá Slóvakíu til Grundarfjarðar

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Listamennirnir Lobos Kotlar og Martina Masiarová dvelja um þessar mundir í vinnustofu ArtAk 350 í Grundarfirði. Lobos er ljósmyndari og Martina listmálari. Þau útskrifuðust bæði frá Academy of fine art and design listaháskólanum í Slóvakíu árið 2018 en þau kynntust á meðan þau voru í náminu. Þau eru góðir vinir og vinna vel saman en þau ætla að vera með sýningu í Reykjavík í byrjun nóvember eftir dvölina í Grundarfirði. „Ég var á Íslandi í fyrra en þá dvaldi ég á Seyðisfirði í aðstöðu fyrir listamenn þar,“ segir Martina en Lobos vinur hennar hafði ekki komið til Íslands áður. „Ég hef farið áður og dvalið í íbúðum fyrir listamenn svipað og ArtAk bæði í Svíþjóð og á Ítalíu,“ bætir Lobos við. Þau eiga svolítið erfitt með að útskýra nákvæmlega hvað felst í list þeirra en Lobos er lærður ljósmyndari og tekur myndir á filmuvél í svarthvítu. Martina málar svo myndir eftir filmunum og mótífum sem hún sér úti í náttúrunni. „Við höfum aðallega nýtt tímann í gönguferðir um nágrennið þar sem við höfum tekið myndir,“ bæta þau við.\r\n\r\nMánudaginn 17. október þegar fréttaritari Skessuhorns hitti listamennina var einstaklega gott veður í Grundarfirði. Sól og logn og sannkölluð haustblíða. Það var alveg ómögulegt fyrir þau Lobos og Martinu því að þau mynda nær eingöngu þegar er þoka, rigning og allt er grátt eða grámyglulegt. „Við vissum eiginlega ekki hvað við áttum af okkur að gera í dag en þegar það er svona gott veður þá eru engar aðstæður fyrir okkur,“ segja þau. „Við viljum hafa grátt og drungalegt þegar við tökum myndir.“ Þau útskýra svo hvernig myndirnar eru, nokkurskonar landslagsmyndir þar sem varla sést skil á landslaginu. „Við viljum að áhorfandinn þurfi að rýna vel í myndina til að sjá móta fyrir einhverjum línum og helst að þurfa að nota ímyndunaraflið,“ útskýrir Lobos. Sýningarnar fara yfirleitt fram á skjá eða er varpað á tjald eða vegg. Einnig eru málaðar myndir eftir Martinu. Þau eru bæði rétt rúmlega þrítug og ferðast mikið í tengslum við listina. „Við erum bæði að kenna en ég kenni ljósmyndun við Academy of fine arts and design listaskólann þar sem við útskrifuðumst,“ segir Lobos. Martina er einnig að kenna bæði börnum og fullorðnum listgreinar í menningarsetri í borginni Zilina í Slóvakíu. Þau hlutu styrk hjá menningarráðuneytinu í Slóvakíu fyrir Íslandsferðinni og komu til landsins í byrjun október og munu dvelja eitthvað fram í nóvember.\r\n\r\n \r\n\r\n ",
  "innerBlocks": []
}
Frá Slóvakíu til Grundarfjarðar - Skessuhorn