Fréttir

true

Eitt og annað hefur verið brallað í Grunnskólanum í Borgarnesi í haust

Frá Grunnskólanum í Borgarnesi Eitt og annað höfum við verið að bralla í Grunnskólanum í Borgarnesi í haust. Við byrjuðum á okkar árlega frjálsíþróttamóti, miðstigsleikunum sem fóru fram á íþróttavellinum í Borgarnesi þann 1. september. Miðstigsleikarnir eru frjálsíþróttamót, nemenda í 5. 6. og 7. bekk, þar sem er keppt í langstökki, kúluvarpi og 60 m…Lesa meira

true

Banaslys í Kirkjufelli

Banaslys varð í Kirkjufelli við Grundarfjörð eftir hádegið í dag og komu björgunaraðilar og sjúkrabíll á staðinn auk lögreglu. Þyrla var síðan kölluð út og annaðist sjúkraflutning til Reykjavíkur. Samkvæmt heimildum Skessuhorns var um erlendan ferðamann að ræða sem var ásamt tveimur öðrum á göngu í fjallinu.      Lesa meira

true

Faxaflóahafnir lengja aðalhafnargarðinn á Akranesi

Endurunnið stál notað í framkvæmdina Til að bæta aðgengi fyrir fiskiskip, farþegaskip og önnur þau skip sem höfnin á Akranesi þjónustar verður ytri hluti aðalhafnargarðsins þar lengdur um 120 metra á næsta ári. Heildarlengd þess hluta bakkans verður þá 220 metrar í stað 100 metra. Áætlað er að framkvæmdin verði boðin út í lok árs…Lesa meira

true

Eyja- og Miklaholtshreppur ræðir sameiningu

Hreppsnefnd Eyja- og Miklaholtshrepps hefur sent bréf til allra sveitarfélaga á Snæfellsnesi um sameiningarviðræður. Er það gert á grundvelli skoðanakönnunar meðal íbúa um sameiningarmál. Afgerandi vilji Skoðanakönnunin var gerð jafnframt sveitarstjórnarkosningunum 14. maí. Þar greiddu 58 íbúar atkvæði um nokkra kosti varðandi sameiningu og voru eftirfarandi niðurstöður afgerandi í þágu þess að allt Snæfellsnes myndi…Lesa meira

true

Alls 48 fyrirmyndarfyrirtæki á Vesturlandi

Keldan og Viðskiptablaðið hafa gefið út lista yfir Fyrirmyndarfyrirtæki í rekstri fyrir árið 2022. 2,3% fyrirtækja á Íslandi eru fyrirmyndarfyrirtæki samkvæmt skilyrðum Keldunnar og Viðskiptablaðins og eru alls 1170 fyrirtæki á heildarlistanum. Til þess að komast á lista Viðskiptablaðsins og Keldunnar yfir Fyrirmyndarfyrirtæki í rekstri þurfa fyrirtæki að uppfylla ströng skilyrði. Þau þurfa að hafa…Lesa meira

true

Dýraníð – aðgerðir Matvælastofnunar

Matvælastofnun (MAST) hefur birt á heimasíðu sinni tilkynningu er varðar dýraníðsmálið sem upp kom í Borgarfirði fyrir stuttu. Um tveir mánuðir eru liðnir frá því fyrst var vakin athygli á málinu í fjölmiðlum. Umráðamaður fær að halda nokkrum hrossum MAST hefur nú sent frá sér tilkynningu um málið með yfirskriftinni Vörslusvipting hrossa vegna vanfóðrunar og…Lesa meira

true

Tjón vegna rafmagnstruflana er ekki bótaskylt

Ábúendur í Ásgarði í Hvammsveit í Dölum urðu fyrir tjóni á varmadælu á búi sínu 10. desember 2019. Þann dag var mikið óveður og rafmagnstruflanir víða miklar. Tjónið má rekja til þessara truflana, þar sem spenna fór út fyrir +/- 10% vikmörk. Enginn tekur ábyrgð á tjóninu. Orkustofnun ákvarðaði að Rarik væri bótaskylt en Rarik…Lesa meira

true

Biðlað til veiðimanna um hófsemi í rjúpnaveiði

Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, hefur staðfest að veiðitímabil rjúpu verður frá 1. nóvember – 4. desember í ár. Heimilt verður að veiða rjúpu frá föstudegi til þriðjudags, frá kl. 12 þá daga sem veiði er heimil og skal veiði eingöngu standa yfir á meðan að birtu nýtur. Ítrekað er að sölubann er…Lesa meira

true

Áhyggjur af ástandi villtra laxastofna

Landssamband veiðifélaga hefur sent frá sér yfirlýsingu þar sem lýst er yfir miklum áhyggjum af ástandi villtra laxastofna á Vestfjörðum og vestanverðu landinu í ljósi nýjustu frétta um eldislaxa í ám á svæðinu. Landssambandið gagnrýnir stjórnvöld og eftirlitsaðila harðlega fyrir seinagang og vanhæfni í málinu. Meira en helmingur eldislaxar Á vef Matvælastofnunnar þann 13. október…Lesa meira

true

Akraneskaupstaður óskar eftir að kaupa land af Hvalfjarðarsveit – færsla sveitarfélagamarka

Lönd Akraneskaupstaðar og Hvalfjarðarsveitar liggja saman þar sem mörk voru áður við Innri-Akraneshrepp. Fyrir nokkrum mánuðum var jörðin Akrakot auglýst til sölu, en hún er staðsett Hvalfjarðarsveitar megin, nokkuð innan við markalínuna milli sveitarfélaganna. Nú hefur Akraneskaupstaður fest kaup á jörðinni og óskað eftir samkomulagi við Hvalfjarðarsveit um færslu sveitarfélagamarkanna, svo og viðræðum um kaup…Lesa meira