
Það skyldi þó ekki vera að Bárður Snæfellsás ætti eftir að sjá sameinað Snæfellsnes. Ljósm. gj.
Eyja- og Miklaholtshreppur ræðir sameiningu
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Hreppsnefnd Eyja- og Miklaholtshrepps hefur sent bréf til allra sveitarfélaga á Snæfellsnesi um sameiningarviðræður. Er það gert á grundvelli skoðanakönnunar meðal íbúa um sameiningarmál.\r\n\r\n<strong>Afgerandi vilji\r\n</strong>Skoðanakönnunin var gerð jafnframt sveitarstjórnarkosningunum 14. maí. Þar greiddu 58 íbúar atkvæði um nokkra kosti varðandi sameiningu og voru eftirfarandi niðurstöður afgerandi í þágu þess að allt Snæfellsnes myndi sameinast. Í Eyja- og Miklaholtshreppi voru í ársbyrjun 2022 alls 102 íbúar og hafði fækkað um 17 milli ára.\r\n\r\nAuðir 2 atkv.\r\n\r\nÓgildir 3 atkv.\r\n\r\nVafaatkvæði 4 atkv.\r\n\r\nBorgarbyggð 8 atkv.\r\n\r\nStykkishólmur/Helgafellssveit/Grundarfjörður 4 atkv.\r\n\r\nStykkishólmur/Helgafellssveit 9 atkv.\r\n\r\nAllt Snæfellsnes 28 atkv.\r\n\r\nUmræður um frekari sameiningar á Snæfellsnesi eru ekki nýjar af nálinni og hafa verið í gangi í ýmsu formi síðustu ár. Grundarfjarðarbær hefur boðið hinum fjórum sveitarfélögunum á Snæfellsnesi til óformlegs fundar um sameiningarmál og kosið var um sameiningu Snæfellsbæjar og Eyja- og Miklaholtshrepps árið 2021 en hún ekki samþykkt. Stykkishólmsbær og Helgafellssveit sameinuðust á þessu ári og Dalabyggð hefur gert könnun meðal íbúa um nokkra möguleika á sameiningu við nærsveitarfélög.\r\n\r\n<strong>Kolbeinsstaðahreppur og Skógarströnd hluti Snæfellsness\r\n</strong>Þess ber að geta að Kolbeinsstaðahreppur og Skógarströnd hafa þegar sameinast Borgarbyggð og Dalabyggð en eru engu að síður landfræðilega hluti Snæfellsness. Félag Snæfellinga og Hnappdæla samþykkti ályktun á aðalfundi sínum vorið 2019 þar sem lýst er áhyggjum yfir þeirri þróun á Snæfellsnesi, að gleymst hafi að þessi svæði teljist til héraðsins Snæfellsness. „Þessu veldur sameining þessara hreppa við Borgarbyggð og Dalabyggð. Landfræðilega, sögulega og menningarlega hafa þessir hreppar öldum saman, verið órofa hluti Snæfellsness. Héraðaskipun á Íslandi snýst ekki aðeins um stjórnsýslueiningar, heldur er hún stór hluti af sjálfsmynd íbúa, ekki síst þeirra sem dvelja ekki lengur á æskuslóðum. Það á ekki að gera Skógstrendinga að Dalamönnum og Kolhreppinga að Borgfirðingum. Saga, menning og landslag verður ekki flutt milli byggðarlaga,“ sagði orðrétt í ályktun fundarins.\r\n\r\nNágrannasveitarfélög Eyja- og Miklaholtshrepps munu væntanlega taka erindi hreppsins fyrir á næstu vikum og bregðast við þeim með einhverjum hætti. Skessuhorn mun fylgjast með framvindu mála.\r\n\r\n \r\n\r\n ",
"innerBlocks": []
}