
Yfirlitsmynd fyrir fyrirhugaðar framkvæmdir sem sýna lengingu bakkans og fyrirhugaða dýpkun á svæði. Faxaflóahafnir.
Faxaflóahafnir lengja aðalhafnargarðinn á Akranesi
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "<strong>Endurunnið stál notað í framkvæmdina\r\n</strong>Til að bæta aðgengi fyrir fiskiskip, farþegaskip og önnur þau skip sem höfnin á Akranesi þjónustar verður ytri hluti aðalhafnargarðsins þar lengdur um 120 metra á næsta ári. Heildarlengd þess hluta bakkans verður þá 220 metrar í stað 100 metra.\r\n\r\nÁætlað er að framkvæmdin verði boðin út í lok árs 2022 og að framkvæmdir hefjist á fyrri hluta næsta árs. Útboð á stálkaupum fór fram á árinu 2022 og var afhent á Akranesi nú í september. Vert er að taka fram að 100% af stálinu er gert úr endurunnu stáli og samræmist það stefnu Faxaflóahafna. Framkvæmdatími verksins er áætlaður 1,5 – 2 ár og verður bakkinn því tilbúinn til fullrar notkunar árið 2024, segir Inga Rut Hjaltadóttir, sviðsstjóri Framkvæmdasviðs.\r\n\r\nAð sögn Sigurðar Jökuls Ólafssonar markaðsstjóra Faxaflóahafna hefur stækkun bryggjunnar þegar verið kynnt útgerðum farþegaskipa og var framkvæmdinni mjög vel tekið. Hún mun þýða að farþegaskip í millistærð munu geta lagst að bryggju í Akraneshöfn. Nú þegar hafa verið bókaðar skipakomur á Akranes fyrir sumarið 2023 og áætlað er að þær verði enn fleiri sumarið 2024 þegar bryggjan verður tilbúin.\r\n\r\nSigurður Jökull segir stækkunina vera mikilvægan lið í þeirri uppbyggingu sem er að eiga sér stað á Akranesi. Hún muni bæta aðstöðu fyrir fiskiskip og stærri skip sem sækja í auðlindir á hafi. Tækifæri samhliða stækkun segir hann t.d. vera að sækja á fengsæl Akranesmið í botnfiski eða uppsjávarfiski. Einnig séu möguleikar fólgnir í miðum grjótkrabba í Faxaflóa og í að styðja við ný verkefni í loftslagstengdri ræktun á sjávargrænmeti og kræklinga- eða ostruræktun. Farþegar millistórra farþegaskipa munu frekar eiga kost á að upplifa það sem Akranes og nærumhverfi hefur upp á að bjóða, t.d. Guðlaugu við Langasand, vitasvæðið á Breið, Byggðasafnið í Görðum og frábæran golfvöll. Sigurður Jökull segir að uppbygging hafnarinnar muni auka forskot Vesturlands alls í að taka virkari þátt í ferðaþjónustu og að mörg tækifæri séu í sjónmáli. Í byrjun ársins 2021 var haldinn íbúafundur á meðal Akurnesinga þar sem ýmsir hagaðilar í ferðaþjónustu komu saman og var afrakstur fundarins skemmtilega uppsett skjal með leiðbeiningum fyrir gesti um hvað væri gaman að sjá og gera á Akranesi. Sævar Freyr Þráinsson bæjarstjóri þar tekur undir þetta: „Við á Akranesi eigum margt inni og erum full tilhlökkunar að móta Akranes sem spennandi og eftirsóknarverðan ferðamannastað.“\r\n\r\n[gallery columns=\"1\" size=\"large\" ids=\"57045\"]",
"innerBlocks": []
}