Eitt og annað hefur verið brallað í Grunnskólanum í Borgarnesi í haust
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "<h2><strong>Frá Grunnskólanum í Borgarnesi</strong></h2>\r\n<h4>Eitt og annað höfum við verið að bralla í Grunnskólanum í Borgarnesi í haust.</h4>\r\nVið byrjuðum á okkar árlega frjálsíþróttamóti, miðstigsleikunum sem fóru fram á íþróttavellinum í Borgarnesi þann 1. september. Miðstigsleikarnir eru frjálsíþróttamót, nemenda í 5. 6. og 7. bekk, þar sem er keppt í langstökki, kúluvarpi og 60 m og 600 m hlaupi. Einnig er keppt í knattspyrnu. Þátttakendur koma úr samstarfsskólum á Vesturlandi; í þetta skipti mættu til leiks nemendur úr Grunnskólanum í Borgarnesi, Grunnskóla Borgarfjarðar, Auðarskóla, Heiðarskóla og Reykhólaskóla.\r\n\r\nFöstudaginn 9. september voru haldnir Ofurbekkjaleikar á unglingastigi. Nemendur 8. 9. og 10. bekkjar kepptu um ofurbekkjabikarinn í hinum ýmsu þrautum, t.d. stígvélakast, reipitog, klæða í sig í bolinn, hitta bolta í hringi og fl. Einnig var keppt í þrautaboðhlaupi þar sem þarf að gera ýmsar þrautir á hlaupaleiðinni. Skemmtu nemendur sér vel þrátt fyrir töluverða rigningu þennan dag og tíundi bekkur stóð uppi sem sigurvegari.\r\n\r\nSkólinn hefur gróðursett tré á vegum Yrkjusjóðsins allt frá árinu 1992. Fyrstu árin var gróðursett í skógræktargirðingu í landi Borgar en árið 2014 var tíuþúsundasta tréð gróðursett. Skólanum var síðar úthlutað svæði í landi Kárastaða og hefur verið gróðursett þar síðan 2020. Nemendur úr vinabekkjunum 4. og 9. bekk gróðursettu um miðjan september í samstarfi við Skógræktarfélag Borgarfjarðar.\r\n\r\nVið vorum svo einstaklega heppinn að fá heimsókn frá Íslenska sirkusnum Hringleik og tékkneska sirkusnum Circus Trochu Inak. Þeir fengu Evrópustyrk fyrir verkefni sem komið var með í skóla. Hóparnir hafa verið virkir bæði í fjölskyldusýningum og æskulýðsstarfi um áraraðir. Markmiðið er að kynna sirkuslist þar sem fólk á ekki greiðan aðgang að henni og að ungt fólk fái hugmyndir um að það er hægt að gera margt sniðugt í lífinu. Það voru einungis fjórir skólar á Íslandi sem fengu að taka þátt, þannig að við vorum mjög heppin. Verkefnið stóð yfir í tvo daga. Dagskráin var þannig að fyrri daginn fengu nemendur í 5. – 10. bekk leiðsögn í félagafimleikum, dansi og jöggli og áttu þá í framhaldi kost á að taka þátt í sýningu sem var fyrir hádegi á fimmtudegi. Það voru um 45 af 200 nemendum miðstigs og unglingastigs sem héldu áfram og undirbjuggu sýningu undir leiðsögn listamannanna. Öllum nemendum og starfsfólki skólans var boðið á sýninguna og það er skemmst frá að segja að listamönnunum var mjög vel tekið og fólk skemmti sér konunglega.\r\n\r\nSmiðjuhelgi skólans fór fram dagana 30. sept.–1.okt. Þá er valgreinum í unglingadeild mætt með öðrum hætti en almennt tíðkast og hafa nemendur tækifæri á að hafa meira um valið að segja og koma með óskir um námskeið. Unnið er út frá hugmyndum nemenda og nú var boðið upp á sex námskeið. Þetta árið voru allskonar skemmtilegar smiðjur í boði, t.d matarsmiðja, íþróttasmiðja, glímusmiðja, leirsmiðja, myndlistarsmiðja og tölvu og tölvuviðgerðarsmiðja. Flestir nemendur reyna að velja smiðju þar sem áhugamálin liggja en oft þarf líka að prófa eitthvað nýtt og framandi sem reynist bara vera hin mesta skemmtun.\r\n\r\nNemendur 9. og 10. bekkjar í skólum Borgarbyggðar fengu að sjá leikverkið Góðan daginn, faggi í boði leikhópsins Stertabenda í samstarfi við Þjóðleikhúsið. Leikhópurinn er í leikferð um landið með sýninguna, sem er hugsuð fyrir 9. og 10. bekki grunnskólanna um land allt og fjármögnuð með styrkjum frá List fyrir alla svo bjóða megi nemendum á sýninguna þeim að kostnaðarlausu.\r\n\r\nGóðan daginn, faggi er sjálfsævisögulegur heimildasöngleikur unnin upp úr dagbókum Bjarna Snæbjörnssonar frá yngri árum og fjallar á gamansaman en einlægan hátt um aðkallandi málefni tengd hinseginleika; skömm, öráreiti og drauminn um að tilheyra. Verkið hefur ríkt fræðslugildi og á brýnt erindi við íslenskt samfélag.\r\n\r\nFréttatilkynning - ljósmyndir aðsendar.\r\n\r\n[gallery columns=\"1\" size=\"large\" ids=\"57050,57051,57052,57053,57054\"]",
"innerBlocks": []
}
Eitt og annað hefur verið brallað í Grunnskólanum í Borgarnesi í haust - Skessuhorn