Biðlað til veiðimanna um hófsemi í rjúpnaveiði

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, hefur staðfest að veiðitímabil rjúpu verður frá 1. nóvember – 4. desember í ár. Heimilt verður að veiða rjúpu frá föstudegi til þriðjudags, frá kl. 12 þá daga sem veiði er heimil og skal veiði eingöngu standa yfir á meðan að birtu nýtur.\r\n\r\nÍtrekað er að sölubann er á rjúpum og á það jafnt við um sölu til endursöluaðila og annarra.\r\n\r\nRáðlögð veiði úr stofninum á þessu ári er um 26 þúsund fuglar, en stærð rjúpnastofnsins hefur dregist saman síðustu ár. Biðlar ráðherra til veiðimanna að sýna hófsemi í veiðum í ljósi viðkomubrests á Norðausturlandi og Vesturlandi, en slæmt tíðarfar í vor og sumar er líklegasta skýringin á viðkomubrestinum. Þá hvetur ráðherra veiðimenn til þess að flykkjast ekki á Norðausturlandið til veiða og eru veiðimenn á því svæði hvattir sérstaklega til að sýna hófsemi.\r\n\r\nGuðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra: „Ég hef lagt áherslu á að Umhverfisstofnun setji í forgang að hraða vinnu við gerð stjórnunar- og verndaráætlunar fyrir rjúpuna og að á grundvelli hennar verði fyrirkomulag veiða í framtíðinni ákveðið.“",
  "innerBlocks": []
}
Biðlað til veiðimanna um hófsemi í rjúpnaveiði - Skessuhorn