
Eitt hrossanna sem um ræddi í umfangsmiklu dýravelferðarmáli í Borgarfirði síðastliðið haust.
Ljósm. Steinunn Árnadóttir
Dýraníð – aðgerðir Matvælastofnunar
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Matvælastofnun (MAST) hefur birt á heimasíðu sinni tilkynningu er varðar dýraníðsmálið sem upp kom í Borgarfirði fyrir stuttu. Um tveir mánuðir eru liðnir frá því fyrst var vakin athygli á málinu í fjölmiðlum.\r\n\r\n<strong>Umráðamaður fær að halda nokkrum hrossum</strong>\r\n\r\nMAST hefur nú sent frá sér tilkynningu um málið með yfirskriftinni Vörslusvipting hrossa vegna vanfóðrunar og vanhirðu. Þar segir að við eftirlit stofnunarinnar með hrossahópi á Vesturlandi sem metinn var í viðkvæmu ástandi hafi komið í ljós að kröfum um fóðrun samhliða beit hafði ekki verið sinnt sem skildi. Stofnunin sendi umráðamanni hrossanna tilkynningu um vörslusviptingu mánudaginn 17. október og kom hún til framkvæmdar þriðjudaginn 18. október, með aðstoð lögreglu. Hrossin voru þá skoðuð ítarlega og holdastiguð. Stofnunin mat ástand 13 þeirra það alvarlegt að aðgerðir þyldu ekki bið. Þessi hross voru verulega aflögð auk þess sem nokkur þeirra voru gengin úr hárum. Að teknu tilliti til árstíma var tekin sú ákvörðun að senda tólf hross samdægurs í sláturhús en eitt var aflífað á staðnum. Önnur hross reyndust vera í ásættanlegum holdum og var skilað til umráðamanns. Tíu þeirra voru þó enn metin í viðkvæmu ástandi og skyldu njóta sérstakrar umhirðu. Málið er því enn til meðferðar hjá stofnuninni þar sem kröfum um úrbætur verður fylgt eftir.\r\n\r\n<strong>Starfshættir MAST til skoðunar</strong>\r\n\r\nSteinunn Árnadóttir hestakona í Borgarnesi vakti upphaflega máls á óverjandi aðbúnaði hrossanna sem hér um ræðir í lok ágúst s.l. og hefur fylgt því máli vel eftir, einnig gagnvart MAST sem nú sætir frumkvæðisrannsókn á starfsháttum í kjölfar sterkrar gagnrýni fyrir að hafa ekki brugðist nógu hratt og faglega við í þessu máli. Fram hefur komið af hálfu MAST að stofnunin taki dýravelferðarmál alvarlega og þau séu sett hratt og örugglega í farveg.",
"innerBlocks": []
}