Akrakot, séð frá þjóðvegi niður að sjó.

Akraneskaupstaður óskar eftir að kaupa land af Hvalfjarðarsveit – færsla sveitarfélagamarka

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Lönd Akraneskaupstaðar og Hvalfjarðarsveitar liggja saman þar sem mörk voru áður við Innri-Akraneshrepp. Fyrir nokkrum mánuðum var jörðin Akrakot auglýst til sölu, en hún er staðsett Hvalfjarðarsveitar megin, nokkuð innan við markalínuna milli sveitarfélaganna. Nú hefur Akraneskaupstaður fest kaup á jörðinni og óskað eftir samkomulagi við Hvalfjarðarsveit um færslu sveitarfélagamarkanna, svo og viðræðum um kaup eða makaskipti á landi í eigu Hvalfjarðarsveitar.\r\n\r\n[gallery columns=\"1\" size=\"medium\" ids=\"57035\"]\r\n\r\nSamningurinn um kaupin á Akrakoti er með ákveðnum fyrirvörum m.a. um að samþykki Hvalfjarðarsveitar fáist fyrir því að sveitarfélagamörk á milli Akraneskaupstaðar og Hvalfjarðarsveitar verði breytt með þeim hætti að land jarðarinnar falli innan sveitarfélagamarka Akraness þ.e. allt landsvæði ofan við býlin Ásfell og Fögrubrekku.\r\n\r\n[gallery columns=\"1\" size=\"medium\" ids=\"57031\"]\r\n\r\nAkraneskaupstaður sendir tvö erindi á fimmtudag til Hvalfjarðarsveitar, annars vegar er þess góðfúslega farið á leit við sveitarfélagið að það taki upp viðræður við Akraneskaupstað um breytingu á sveitarfélagamörkum. Hins vegar er beiðni um viðræður um kaup eða makaskipti á landi af Hvalfjarðarsveit til tengingar inn á hið selda landssvæði.\r\n\r\nEf áætlanir Akraneskaupstaðar ganga upp er fyrirhuguð íbúabyggð á landinu. Yrðu það sérbýli, þ.e. einbýlishús og par-/raðhús,  þ.e. lágreist byggð 1-3 hæðir. Kaupin eru ætluð til að tryggja um 40% hlutfall sérbýla í bæjarfélaginu. Með þessu vill bæjarstjórn tryggja framþróun Akraness til langs tíma í góðri sátt við Hvalfjarðarsveit. Í tilkynningu segir að í þessu felist tækifæri til áframhaldandi góðs samstarfs sveitarfélaganna sem og hagræði fyrir bæði sveitarfélögin til hagsbóta fyrir íbúa, m.a. með vegtengingum o.fl. Ef fallist verður á sölu eða makaskipti munu sveitarfélagamörk breytast til samræmis.‘‘\r\n\r\nEftir að málið var kynnt fulltrúum Hvalfjarðarsveitar hefur sveitarfélagið óskað eftir formlegu erindi og boðið til framhaldsfundar þar sem Akraneskaupstað er gefið tækifæri til að kynna erindi sitt nánar.\r\n\r\nSævar Freyr Þráinsson bæjarstóri á Akranesi segir sveitarfélögin tvö hafa átt í góðu samstarfi á ýmsum sviðum gegnum tíðina. „Akranes og Hvalfjarðarsveit hafa um árabil átt í góðu samstarfi um rekstur slökkviliðs, tónlistarskóla, byggðasafns, hjúkrunarheimilis og þróunarfélags á Grundartanga. Okkur hefur tekist að finna sameiginlegar lausnir til að bæði sveitarfélög dafni í nábýli við hvort annað. Dæmi um það er að við styðjum við mikilvæga þróun atvinnusvæðisins á Grundartanga og eru á annað hundrað íþróttaiðkenda úr Hvalfjarðarsveit að nýta þau íþróttamannvirki sem hér eru. Nýverið náðum við að leysa sambærilegt mál er við færðum sveitarfélagamörk um 100 hektara lands norðanvert við Berjadalsá, en þar fyrirhugar Akranes uppbyggingu á atvinnustarfsemi.“\r\n\r\nHann tekur einnig fram að ríkisstjórnin vinni að því af kappi að tryggja stöðugleika á húsnæðismarkaði þar sem framboðsskortur hefur verið ríkjandi og húsnæðisverð hefur hækkað hratt. „Ég er sannfærður um að bæði sveitarfélög ætli að leggja sitt af mörkum í að mæta markmiðum ríkis um 35 þúsund íbúða fjölgun á næstu 10 árum. Akranes er með töluverðan fjölda lóða fyrir fjölbýlishús sem eru að koma inn á næstu misserum t.d. á Sementsreit, Dalbrautarreit og á þéttingarreitum og er þessu nýja landi ætlað að vera mótvægi og mæta þörf fyrir uppbyggingu sérbýla. Staðsetning þess hentar svo einstaklega vel fyrir slíka byggð og er líkleg til að geta mætt okkar þörfum næsta áratuginn og jafnvel áratugina.“ segir Sævar.\r\n\r\n[gallery columns=\"2\" size=\"medium\" ids=\"57033,57032\"]\r\n\r\nSkessuhorn hafði einnig samband við Lindu Björk Pálsdóttur sveitarstjóra Hvalfjarðarsveitar út af málinu. „Hvalfjarðarsveit hefur móttekið erindi Akraneskaupstaðar og munu þau í kjölfarið fara í formlega málsmeðferð hjá sveitarfélaginu,“ segir Linda. „Þau verða lögð fram á næsta sveitarstjórnarfundi þann 26. október nk. og væntanlega vísað áfram til umfjöllunar í nefndum, bæði mannvirkja- og framkvæmdanefnd auk umhverfis-, skipulags-, náttúruverndar- og landbúnaðarnefnd. Fulltrúum Akraneskaupstaðar hefur nú þegar verið boðið á fund þann 25. október nk., með fulltrúum sveitarstjórnar Hvalfjarðarsveitar og beggja nefndanna, til þess að kynna erindi sín nánar áður en þau verða tekin til málsmeðferðar og afgreiðslu hjá Hvalfjarðarsveit.“\r\n\r\nMál sem þetta hafa áður komið inn á borð sveitarfélaga í grennd við ört vaxandi byggð. Má þar nefna erindi Árborgar til Flóahrepps fyrir nokkru, þar sem þess var farið á leit að eignarlönd þess austan við Selfoss féllu undir Árborg. Samþykkt var með öllum atkvæðum sveitarstjórnar Flóahrepps að segja nei við erindinu svo og erindi Árborgar um tilfærslu sveitarfélagamarka. Jafnframt tók sveitarstjórn Flóahrepps fram að hún teldi samstarf sveitarfélagana hafa verið gott á undanförnum árum og vonaðist til að svo yrði áfram. Þessu til viðbótar mætti nefna deilur Hveragerðisbæjar og Ölfuss, þar sem síðarnefnda sveitarfélagið neitaði tilfærslu sveitarfélagamarka og ákvað að hækka kostnaðarþáttöku Ölfuss í sameiginlegum verkefnum. Hafa ber þó í huga að aðstæður á Suðurlandi eru nokkuð annars eðlis því ofangreind sveitarfélög hafa ekki átt í viðlíka víðtæku samstarfi og Akraneskaupstaður og Hvalfjarðarsveit.\r\n\r\n[gallery columns=\"1\" size=\"large\" ids=\"57034\"]\r\n\r\n ",
  "innerBlocks": []
}
Akraneskaupstaður óskar eftir að kaupa land af Hvalfjarðarsveit - færsla sveitarfélagamarka - Skessuhorn