Fréttir

true

Rafskútur væntanlegar í Borgarnes og fjölgar á Akranesi

Fyrir rúmu ári komu rafskútur á Akranes í fyrsta sinn og voru þær á vegum fyrirtækisins Hopp Akranes. Það eru Akurnesingarnir Iris Gústafsdóttir, Alexandra Jóna Hermannsdóttir og Gunnar Örn Gíslason sem standa að rekstrinum og fyrst um sinn voru fjörutíu skútur til staðar á Akranesi. Nú hefur fyrirtækið fest kaup á sjötíu nýjum skútum til…Lesa meira

true

Brynjar Gauti genginn til liðs við Fram

Hinn þrítugi miðvörður, Brynjar Gauti Guðjónsson knattspyrnumaður frá Ólafsvík, er genginn í raðir Fram. Frá þessu er greint á fotbolti.net. Brynjar Gauti kemur frá Stjörnunni þar sem hann hefur verið frá tímabilinu 2015, en áður spilað m.a. með Víkingi sem fyrirliði áður en hann fór til ÍBV. Hann lék 179 leiki fyrir Stjörnuna og skoraði…Lesa meira

true

Góður sigur Káramanna gegn ÍH

Kári vann á þriðjudagskvöldið góðan sigur á ÍH 4:2 í 3. deildinni í knattspyrnu í leik sem fram fór í Akraneshöllinni. Kári átti glimrandi leik í fyrri hálfleiknum og leiddi 3:0 í hálfleik. Komu öll mörkin á átta mínútna kafla í seinni hluta hálfleiksins. Andri Júlíusson braut ísinn á 28. mínútu. Hilmar Halldórsson bætti öðru…Lesa meira

true

Búið er að draga brennandi bátinn að landi

Nú er búið að draga flak Gosa KE nærri landi milli Rifs og Ólafsvíkur. Það var björgunarskip Lífsbjargar í Rifi sem kom að bátnum um klukkan 10 í morgun þar sem hann var um tvær sjómílur norðvestur af Rifi, en eldsins hafði orðið vart um hálftíma áður. Reynt var að slökkva eldinn með vatni sem…Lesa meira

true

Samið um strætisvagnaakstur á Akranesi til 2029

Í vikunni var skrifað undir samning um akstur strætisvagna á Akranesi fyrir árin 2022-2029. Í kjölfar útboðs þar sem þrír aðilar buðu í aksturinn var samið við Hópferðabíla Reynis Jóhannssonar ehf. um innanbæjaraksturinn. Tilboð fyrirtækisins hljóðaði upp á 307,1 milljón króna, en kostnaðaráætlun var 300 milljónir. Aðrir sem buðu í verkið voru Skagaverk (318 milljónir…Lesa meira

true

Nýtt sundlaugarhús vígt við Hreppslaug

Fjölmenni var saman komið síðdegis í gær þegar nýtt laugarhús, Laugarbúð, var vígt og endurbættir heitir pottar teknir í notkun við Hreppslaug í Skorradal. Guðni Th Jóhannesson forseti Íslands var á ferð í Skorradal í gær. Hann vígði húsið og stakk sér að því búnu til sunds ásamt sveitungum í Skorradal og Andakíl.  Kaffiveitingar voru…Lesa meira

true

Mannbjörg þegar bátur brann norðvestur af Rifi

Björgin, björgunarbátur Lífsbjargar í Rifi, var ræst út með hæsta forgangi uppúr klukkan hálf tíu í morgun. Fjölmargir sjónarvottar í landi höfðu þá látið vita um eld um borð í báti um tvær sjómílur norðvestur af Rifi. Meðfylgjandi mynd er skjáskot úr vefmyndavélinni við Rifshöfn. Á henni sést hvar Björgin er komin í nágrenni við…Lesa meira

true

Annir hjá lögreglu og mikil ölvun

Dagbók lögreglunnar á Vesturlandi er þéttskrifuð eftir annasama helgi Írskra daga á Akranesi. Minniháttar umferðaróhapp varð á Skólabraut og annað á Suðurgötu á móts við gatnamót Vitateigs. Vegna hátíðarhaldanna og mikils fjölda í bænum var viðbótarmannskap lögreglu bætt við á Akranesi alla helgina og að jafnaði áhafnir á fimm bílum sem sinntu fjölmörgum útköllum. Meðal…Lesa meira

true

Sameina Signýjarstaði og Refsstaði

Hjónin Arnþór Pálsson og Birna Rún Ragnarsdóttir, bændur á Signýjarstöðum í Hálsasveit, festu nýverið kaup á jörðinni Refsstöðum. Jarðirnar liggja saman og verða sameinaðar og munu gerbreyta forsendum til búrekstrar. Breytingarnar eru kærkomnar en óvæntar og komu ekki endilega upp á besta tíma í fjölskyldunni. „Við keyptum Refsstaði núna 1. apríl og tókum við. Þetta…Lesa meira