Hjónin Arnþór Pálsson og Birna Rún Ragnarsdóttir með syninum Ragnari Páli og þeim nýfædda og óskírða í fangi móður sinnar, ásamt með bróðurdóttur Birnu, Laufeyju Ernu Oddsdóttur. Ljósm. kóp

Sameina Signýjarstaði og Refsstaði

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Hjónin Arnþór Pálsson og Birna Rún Ragnarsdóttir, bændur á Signýjarstöðum í Hálsasveit, festu nýverið kaup á jörðinni Refsstöðum. Jarðirnar liggja saman og verða sameinaðar og munu gerbreyta forsendum til búrekstrar. Breytingarnar eru kærkomnar en óvæntar og komu ekki endilega upp á besta tíma í fjölskyldunni. „Við keyptum Refsstaði núna 1. apríl og tókum við. Þetta gerðist allt mjög snöggt. Við fengum vilyrði frá bankanum örfáum dögum áður. Við tókum við af fyrri eigendum um leið, fjósið var í fullum rekstri og við stigum bara inn í þetta,“ segir Arnþór. „Þetta gerðist mjög snögglega. Það sem var aðeins að hægja á okkur var að konan var kasólétt. Þetta var ekki beint það sem við vorum að hugsa okkur á þessu tímabili,“ segir Arnþór í samtali við Skessuhorn. Þeim hjónum fæddist svo sonur 5. júní síðastliðinn og það var sannarlega ekki í plönunum að standa í jarðakaupum og meðfylgjandi breytingum á sama tíma.\r\n\r\n„Ég var að vonast til að ég tæki ekki við þessu fyrr en 1. maí, en það var kannski eins gott að við tókum við þessu 1. apríl. Við þurftum þann tíma til að ná öllu eins og við vildum hafa það svo ég gæti stokkið aðeins til hliðar þegar barnið fæddist,“ segir Arnþór.\r\n\r\nHjónin búa í nýbyggðu húsi á Signýjarstöðum og hyggjast gera það áfram. „Við fluttum hingað 2020, rétt fyrir jólin, í þetta hús. Tókum við hér af pabba hans í byrjun árs 2020. Við vorum líka að reka hótelið í Reykholti, Fosshótel Reykholt, og hættum þar alveg í júní 2020. Til að byrja með vorum við á báðum stöðum, en fórum hingað í júní,“ segir Birna Rún. Hún segir að ef kaupin hefðu gerst fyrr, áður en þau réðust í húsbyggingu, hefðu þau kannski flutt að Refsstöðum, en þau vilji ógjarnan fara úr nýja húsinu sínu.\r\n\r\n<em>Sjá nánar í Skessuhorni sem kom út í dag.</em>",
  "innerBlocks": []
}
Sameina Signýjarstaði og Refsstaði - Skessuhorn