Fréttir

true

Vonandi verð ég íbúum til sóma – segir nýi sveitarstjórinn

„Ég svaf lítið í nótt, var mjög spenntur. Því fylgir spenna og dálítið stress að mæta á nýjan vinnustað. Líklega er það merki um að maður vilji standa sig. Þetta er þó óneitanlega meira hjartans mál en flest önnur vinna sem ég hef tekið að mér,“ segir Stefán Broddi Guðjónsson. Skessuhorn hitti á hann á…Lesa meira

true

Minnisvarði um Unglingaskólann á Reykhólum

Síðastliðinn föstudag var reistur minnisvarði um Unglingaskólann á Reykhólum sem starfaði þar árin 1959 til 1961 undir skólastjórn Sigurðar Elíassonar tilraunastjóra á Reykhólum. Minnisvarðinn er við göngustíg milli kirkjunnar og Dvalarheimilisins Barmahlíðar. Hönnuður var Birgir Jóakimsson en framkvæmdinni stjórnaði Ari Jóhannesson sem hér sést á mynd.Lesa meira

true

Frá Íslandi til Nígeríu með viðkomu í Kína

Þriðjudaginn 12. júlí nk. kl. 20 flytur Snorri Sigurðsson, framkvæmdastjóri hjá Arla Foods, fyrirlestur í Snorrastofu í Reykholti, sem ber yfirskriftina: „Frá Íslandi til Nígeríu með viðkomu í Kína“. Fyrirlesturinn, sem er hluti af fyrirlestraröðinni „Fyrirlestrar í héraði“, er öllum opinn og er aðgangur ókeypis. Snorri mun segja frá reynslu sinni af búsetu og störfum…Lesa meira

true

Einar Margeir tekur þátt í Evrópumótinu í sundi

Í morgun hófst Evrópumeistaramót unglinga í sundi, en það fer fram í Rúmeníu. Alls taka 494 sundmenn frá 42 löndum þátt í mótinu. Fimm íslenskir keppendur eru mættir til leiks og á ÍA einn þeirra; Einar Margeir Ágústsson. Aðrir sundmenn frá Íslandi eru: Freyja Birkisdóttir Breiðabliki, Eva Margrét Falsdóttir ÍRB, Snorri Dagur Einarsson SH og…Lesa meira

true

Slakur leikur Skagamanna í Breiðholtinu

Skagamenn léku í gærkvöldi gegn Leikni og fór leikurinn fram í Breiðholtinu. Leikurinn var mikilvægur fyrr bæði lið í botnbaráttu Bestu deildar. Leiknismenn höfðu betur í leiknum og sigruðu 1:0. Leikurinn í heild sinni var ekki rismikill og úrslitin afleit fyrir Skagamenn. Það var lítið um opin færi í fyrri hálfleiknum og leikurinn í nokkru…Lesa meira

true

Eldur við verksmiðju Elkem í nótt

Laust fyrir klukkan tvö í nótt var allur mannskapur Slökkviliðs Akraness og Hvalfjarðarsveitar kallaður út að verksmiðju Elkem Ísland á Grundartanga. Eldur var þá laus undir töppunarpalli, á stað þar sem töluvert af glussa er geymt undir. Starfsmenn glímdu við eldinn meðan beðið var aðstoðar slökkviliðs og höfðu tæmt úr fjörutíu slökkvitækjum og þannig náð…Lesa meira

true

Fjölskylduhátíð SÁÁ að Skógum um verslunarmannahelgina

Skógar 22, fjölskylduhátíð SÁÁ, verður haldin að Skógum um verslunarmannahelgina. Hátíðarsvæðið er við Skógaskóla í einstaklega fallegu og skjólsælu umhverfi. Fjölskylduhátíð SÁÁ er fyrir alla aldurshópa og verður fjölbreytt dagskrá í boði. Þar á meðal má nefna hljómsveit, skemmtiatriði, töframann, brekkusöng, paintball, hoppukastala, sápubolta, ratleik, jóga, sjálfsvinnu, listasmiðju og margt fleira. Stutt er í fjölbreytta…Lesa meira

true

Talað um hesta á ensku og þýsku

Fyrir síðustu jól kom út bókin Tölum um hesta eftir hjónin á Gufuá í Borgarhreppi, Sigríði Ævarsdóttur og Benedikt Guðna Líndal. Kom bókin út á íslensku eins og lög gera ráð fyrir, enda ætluð fyrir íslenskan jólabókamarkað. Hún hefur verið vinsæl meðal hestaunnenda. Íslenski hesturinn er hins vegar ekki síst þekktur víða um heim svo…Lesa meira

true

Náttúrubarnahátíð verður á Ströndum um næstu helgi

Það styttist óðum í Náttúrubarnahátíð á Ströndum, en hún verður haldin á Sauðfjársetrinu í Sævangi helgina 8.-10. júlí. Þetta er í sjötta skipti sem hátíðin er haldin, en hún er fjölskylduhátíð þar sem gestir; börn og fullorðnir, fá tækifæri til að finna eða rækta sitt innra náttúrubarn á fjölbreyttum viðburðum sem einkennast af útivist, fróðleik…Lesa meira

true

Stærsta skemmtiferðaskip sumarsins er nú í Grundarfirði

Skemmtiferðaskipið Sky Princess skreið inn lygnan Grundarfjörðinn í morgun en framundan var dagsdvöl á Snæfellsnesi fyrir þá þrjúþúsund og fimmhundruð farþega sem voru um borð. Ferðalangarnir fengu frábærar aðstæður því logn og milt veður lék við þá. Einhverjir fóru í rútuferðir í kringum Snæfellsnes, aðrir í rútuferðir að Kirkjufellsfossi, fuglaskoðun með Láka Tours, Kayakferðir með…Lesa meira