Fjölskylduhátíð SÁÁ að Skógum um verslunarmannahelgina
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Skógar 22, fjölskylduhátíð SÁÁ, verður haldin að Skógum um verslunarmannahelgina. Hátíðarsvæðið er við Skógaskóla í einstaklega fallegu og skjólsælu umhverfi. Fjölskylduhátíð SÁÁ er fyrir alla aldurshópa og verður fjölbreytt dagskrá í boði. Þar á meðal má nefna hljómsveit, skemmtiatriði, töframann, brekkusöng, paintball, hoppukastala, sápubolta, ratleik, jóga, sjálfsvinnu, listasmiðju og margt fleira.\r\n\r\nStutt er í fjölbreytta útiveru í næsta nágrenni. Þar á meðal má nefna lengri sem skemmri gönguleiðir, Skógafoss, Paradísarhelli, Seljalandsfoss, Seljavallalaug og Kvernugil. Örskammt frá er Byggðasafnið að Skógum. Fyrsta flokks aðstaða er á hátíðarsvæðinu fyrir ferðavagna jafnt sem tjöld. Rafmagn er í boði fyrir ferðavagna. Í Skógaskóla er hægt að fá gistingu í Hótel Kverna.\r\n\r\nMiðasala er á Tix.is og hjá SÁÁ í Efstaleiti 7. Forsala er til 15. júlí, en eftir það hækkar verð.\r\n\r\n<em>-fréttatilkynning</em>",
"innerBlocks": []
}
Fjölskylduhátíð SÁÁ að Skógum um verslunarmannahelgina - Skessuhorn