
Snorri Sigurðsson
Frá Íslandi til Nígeríu með viðkomu í Kína
{ "name": "core/freeform", "attributes": [], "saveContent": "Þriðjudaginn 12. júlí nk. kl. 20 flytur Snorri Sigurðsson, framkvæmdastjóri hjá Arla Foods, fyrirlestur í Snorrastofu í Reykholti, sem ber yfirskriftina: „Frá Íslandi til Nígeríu með viðkomu í Kína“. Fyrirlesturinn, sem er hluti af fyrirlestraröðinni „Fyrirlestrar í héraði“, er öllum opinn og er aðgangur ókeypis.\r\n\r\nSnorri mun segja frá reynslu sinni af búsetu og störfum í fjarlægum löndum, þar sem hann hefur undanfarin ár unnið að þróun mjólkurframleiðslu við býsna krefjandi aðstæður. Snorri lauk BSc námi frá Landbúnaðarháskólunum á Hvanneyri árið 1995 og síðan meistarnámi frá háskólanum í Kaupmannahöfn árið 1998, þar sem hann sérhæfði sig í nautgriparækt. Hann vann svo á Íslandi frá 1998 til 2010 við kennslu, námskeiðahald, rannsóknir og framkvæmdastjórn, bæði hjá Landssambandi kúabænda og Búrekstrarsviði Landbúnaðarháskólans.\r\n\r\nÁrið 2010 hóf hann störf sem ráðgjafi danskra kúabænda á vegum danska ráðgjafa- og þróunarfyrirtækisins SEGES. 2017 flutti hann síðan til Kína og starfaði þar sem sem framkvæmdastjóri hjá danska fyrirtækinu Arla Foods, en þetta samvinnufélag hefur sérhæft í mjólkursöfnun og -vinnslu. Í Kína sá hann um rekstur þróunarstofnunar í eigu Arla Foods og árið 2021 tók hann að sér uppbyggingu Arla Foods í Nígeríu og hefur verið þar frá því í fyrra. Hann hefur einnig komið að málum í Túnis, Indónesíu og Bangladesh og framundan er vinna við ráðgjöf i Líbanon.\r\n\r\nFyrirlesturinn er styrktur af Uppbyggingarsjóði Vesturlands.\r\n\r\n<em>-fréttatilkynning</em>", "innerBlocks": [] }