Stefán Broddi Guðjónsson á fyrsta degi í nýrri vinnu sem sveitarstjóri Borgarbyggðar. Hann segist vera spenntur fyrir nýju starfi og mikill heiður sé að fá að sinna því. Hann sér mikil tækifæri fyrir sveitarfélagið. Ljósm. kóp.

Vonandi verð ég íbúum til sóma – segir nýi sveitarstjórinn

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "„Ég svaf lítið í nótt, var mjög spenntur. Því fylgir spenna og dálítið stress að mæta á nýjan vinnustað. Líklega er það merki um að maður vilji standa sig. Þetta er þó óneitanlega meira hjartans mál en flest önnur vinna sem ég hef tekið að mér,“ segir Stefán Broddi Guðjónsson. Skessuhorn hitti á hann á fyrsta degi í nýju starfi, en hann var ráðinn sveitarstjóri Borgarbyggðar á dögunum. Stefán er ekki ókunnugur á þessum slóðum, nema síður sé, hann flutti í Borgarnes þegar hann var eins árs að aldri og ólst þar upp. Hann naut æskuáranna og segir Borgarnes hafa haldið vel utan um sig þegar hann var strákur.\r\n\r\n„Ég er uppalinn hér. Ég er eins árs þegar foreldrar mínir flytja í Borgarnes. Ég ólst hérna upp, bjó þar til ég fór í framhaldsskóla en kom alltaf heim á sumrin og í öðrum fríum og vann hérna. Eins þegar ég var í háskóla. Ég var í fótboltanum, náði að fara upp og niður margar deildir með Skallagrími, aðallega upp minnir mig. Vann í mjólkursamlaginu, Loftorku og á hótelinu sem dæmi. Það var rosalega gaman að alast upp hérna og að koma heim á sumrin, vinna og vera í íþróttunum og sinna menningunni, því sveitaböllin voru allt um kring og það þurfti að sinna þeim. Hér blómstraði mikið líf eins og nú, þó margt hafi breyst.“\r\n\r\n<em>Sjá ítarlegt viðtal við Stefán Brodda í Skessuhorni sem kom út í dag.</em>",
  "innerBlocks": []
}
Vonandi verð ég íbúum til sóma - segir nýi sveitarstjórinn - Skessuhorn