
Reynir Jóhannsson hefur sinnt strætisvagnaakstri á Akranesi síðan 2016 og mun nú bæta sjö árum við samkvæmt nýjum samningi. Ljósm. úr safni Skessuhorns.
Samið um strætisvagnaakstur á Akranesi til 2029
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Í vikunni var skrifað undir samning um akstur strætisvagna á Akranesi fyrir árin 2022-2029. Í kjölfar útboðs þar sem þrír aðilar buðu í aksturinn var samið við Hópferðabíla Reynis Jóhannssonar ehf. um innanbæjaraksturinn. Tilboð fyrirtækisins hljóðaði upp á 307,1 milljón króna, en kostnaðaráætlun var 300 milljónir. Aðrir sem buðu í verkið voru Skagaverk (318 milljónir króna) og Vestfirskar ævintýraferðir (467 milljónir kr).\r\n\r\nHópferðabílar Reynis hafa sinnt akstri innanbæjar síðan 2016. Frá því er greint í tilkynningu á vef bæjarins að á tímabilinu verður strætisvagnaþjónusta við íbúa aukin með því að bæta við öðrum vagni í innanbæjaraksturinn. Í þeim tilgangi mun fyrirtækið taka í rekstur tvo nýja rafmagnsvagna um næstu áramót.",
"innerBlocks": []
}