
Brynjar Máni Jóhannsson, Hildur Karen Aðalsteinsdóttir og Kristjana Guðrún Fanný Björnsdóttir. Ljósm. mm
Saman á Skaga – til að rjúfa félagslega einangrun fullorðinna fatlaðra einstaklinga
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Undanfarin tvö ár hefur Hildur Karen Aðalsteinsdóttir stýrt verkefni sem nefnist Saman á Skaga. Markmið þess er að auka félagslega virkni fatlaðs fólks og horft er til hóps 18 ára og eldri. Tildrög þess að verkefninu var ýtt úr vör var heimsfaraldur Covid-19. Veiran hálfpartinn lamaði mannlífið hér á landi fyrir rúmum tveimur árum og ákvað ríkisstjórnin, sem einn af aðgerðapökkum sínum, að leita til sveitarfélaga um að auka við félagsstarf fyrir fullorðið fatlað fólk. Vorið 2020 fékk Akraneskaupstaður framlag til þessa verkefnis og óskaði Hvalfjarðarsveit eftir að gerast meðaðili í því. Við því var orðið og ákváðu sveitarfélögin að standa saman að verkefninu. Akraneskaupstaður skipulagði útfærslu á verkefninu fyrir þátttakendur með fjölbreyttu félagsstarfi, viðburðum og tilboðum og réð Hildi Karen til að stýra því.\r\n\r\nFram til þessa hefur ekki átt sér stað opinber kynning á verkefninu, en í ljósi þess að nú er í umræðunni að Akraneskaupstaður haldi þessu verkefni áfram var ákveðið að segja frá því hvernig til hefur tekist og hver næstu skref verða. Hildur Karen kom á ritstjórn Skessuhorns til að ræða við blaðamann en með henni í för voru þau Kristjana Guðrún Fanný Björnsdóttir og Brynjar Máni Jóhannsson. Þau hafa bæði verið virkir þátttakendur í þeim viðburðum sem skipulagðir hafa verið á undanförnum misserum.\r\n\r\n<em>Sjá ítarlega umfjöllun um verkefnið Saman á Skaga í Skessuhorni sem kom út í morgun.</em>",
"innerBlocks": []
}